bb.is | 11.07.2002 | 09:27Hólmavík skiptir ekki um nafn
Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps ákvað í fyrradag að sveitarfélagið skyldi áfram ganga undir nafninu Hólmavíkurhreppur. Umræða um þessi mál kviknaði í kjölfar sameiningar Kirkjubólshrepps við sveitarfélagið í vor, en skiptar skoðanir voru meðal íbúa Kirkjubólshrepps um sameininguna og varð ágreiningurinn m.a. til þess að starfandi oddviti þar á síðasta kjörtímabili, Matthías Lýðsson í Húsavík, sagði af sér. Tillaga þess efnis að Hólmavíkurhreppur breytti ekki um nafn í kjölfar sameiningarinnar var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á hreppsnefndarfundi, en einn fundarmanna sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
Til baka - Prenta grein - Senda grein - Senda á Facebook