13.07.2012 | 09:00 - 23:59Sæluhelgin Suðureyri
Föstudagurinn 13. júlí (Karnival stemming) 09:00 – 10:00 Sundleikfimi í Sundlaug Suðureyrar undir leiðsögn Önnu Bjarna. 13:00 – 18:00 Handverkshúsið Milli fjalla opið fyrir gesti og gangandi. 14:00 - 16:00 Upprifjun á Sæluhelgarlögunum og gömlu Súgfirsku leikjunum, t.d. „spýtan fallin“, „stattu á meðan“, „yfir“, „slá grípa og hlaupa“ og „hverfu“ á Sjöstjörnunni. 16:30 – 18:00 Þorpsganga undir leiðsögn bæjarhöfðingjans Jóhanns Bjarnasonar. Saga húsa og þorpsins rifjuð upp. 17.00 - 18:00 Náströnd – Skáldið á Þröm / Forsala miða á Fisherman Hotel. 19:00 - 22:30 Fjölskylduhátíð með Karnival-stemmingu á Freyjuvöllum. Opnunarræða, kynning á Sæluhelgarlaginu, sameiginlegt grill, gjarðaskopp, krítarkeppni, furðufatakeppni, Nauta-at, umhverfisverðlaun og verðlaunaafhending. 23:00 – 03:00 Stórdansleikur í FSÚ þar sem Hljómsveitin Króm ásamt gestasöngkonunni Auði Birnu heldur uppi rífandi stemmingu framundir morgunsól. Leiktæki og hoppukastalar fyrir börnin verða á svæðinu alla Sæluhelgina. Kynning á nýju Sæluhelgarlagi, “Í sól á Suðureyri” Eftir Siggeir Siggeirsson, við texta Ingibjargar Gunnarsdóttur, í flutningi Eyrúnar Arnarsdóttur. Sæluhelgararmband barna veitir börnum, 17 ára og yngri aðgang að öllum dagskrárliðum Sæluhelgarinnar. Undanskilið er gókart, siglingar með Ísöld og dansleikirnir. Sæluhelgararmband fullorðinna, 18 ára og eldri, veitir aðgang að öllum dagskráliðum Sæluhelgarinnar og báðum dansleikunum. Undanskilið er gókart og siglingar með Ísöld. BARNAARMBAND 1.000 kr. / FULLORÐINSARMBAND 2.500 kr. Sæluhelgarbásinn verður opinn alla helgina þar sem hægt verður að kaupa Sæluhelgarmerkin fyrir safnarana og ýmsa Sælu-minjagripi.til baka í viðburðiSkrá viðburð