Viðburður

Mynd með frétt

03.06.2012 | 10:00 - 11:00Sýnum Snorra Má stuðning í verki

Eins og fram hefur komið í fréttum undanfarið, hyggst Ísfirðingurinn Snorri Már Snorrason fara hjólandi umhverfis Ísland nú í júní. Snorri Már sem greindur var með Parkinsonssjúkdóminn aðeins 39 ára að aldri, vill með þessu framtaki sýna fram á að ýmislegt sé nú hægt að gera þrátt fyrir sjúkdóm og að hreyfingin sé öllum holl og nauðsynleg ef farið er eftir getu hvers og eins . Sunnudaginn 3. júní kl 10.00 leggur Snorri Már af stað í hjólaferðina sína sem hann kallar reyndar „Skemmtiferðina“. Af því tilefni langar fjölskyldu hans hér á Ísafirði að koma saman og styðja hann og átak hans með táknrænum hætt og hjóla eða ganga einhvern spöl og verða þannig við áskorun hans þar sem hann heitir á fólk að hreyfa sig meira í dag en í gær! Við ætlum að hittast á Silfurtorginu kl 10.00 sunnudaginn 3. júní, á sama tíma og Snorri Már, Kristrún konan hans og fjölmargir vinir þeirra ætla að leggja af stað í „Skemmtiferðina“ frá Prentsmiðjunni Odda við Höfðabakka í Reykjavík, en Oddi er helzti styrktaraðili „Skemmtiferðarinnar“. Okkur þætti afar vænt um að fleiri leggðu okkur lið og kæmu og gengju með okkur eða hjóluðu smá spöl, ætlum okkur svona hálfa til eina klukkustund í þetta og fólk hefði samt sem áður nægan tíma til að mæta í Sjómannadagsmessuna kl 11.00 ! Allir í „Skemmtiferð“ á sunnudaginn kl 10.00 ! Fjölskylda Snorra Más á Ísafirði. Allar upplýsinga um „Skemmtiferðina“ er að finna á facebooksíðunni „Skemmtiferðin“. https://www.facebook.com/pages/Skemmtifer%C3%B0in/155595887896229

til baka í viðburðiSkrá viðburð


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi