Viðburður

Mynd með frétt

31.05.2012 | 20:00 - 21:30Vortónleikar Gospelkórs Vestfjarða á Ísafirði, til styrktar Davíð

Tónleikarnir verða í Ísafjarðarkirkju kl. 20 og rennur allur ágóði alfarið til Davíðs A. Höskuldssonar, sem slasaðist lífshættulega 1. nóv. 2011, eftir fall af þriggja hæða blokk sem hann var að vinna við. Hann var ekki með neina sérstaka slysatryggingu og óvíst hvort eða hvenær hann getur farið að vinna aftur. Þetta verða fjölbreyttir tónleikar þar sem m.a. koma fram fyrir utan kórinn, Skundi litli og Eggert Níelsson sem munu flytja nokkur ný lög. Það verður einnig frumflutt gospel lag sem Halldór Smárason samdi sérstaklega fyrir kórinn. Kórmeðlimir munu spreyta sig í einsöng og tvísöng. Margir hljóðfæraleikarar koma að þessum tónleikum. Sunna Karen spilar á píanó og fiðlu, Skundi litli á gítar, Eggert Níelsson á bassa, Benjamín Bent Árnason á trommur, Steinunn Jónsdóttir á trompet og Kristín Harpa Jónsdóttir á harmonikku.

Aðgangseyrir er kr. 2.000,- og það verður posi á staðnum, þannig að hægt er að borga með korti. Þeir sem ekki sjá sér fært að koma á tónleikana en vilja styrkja Davíð er bent á söfnunarreikning í Landsbankanum 0156-15-630084, 040956-4419.

til baka í viðburðiSkrá viðburð


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi