Viðburður

Mynd með frétt

20.06.2012 | 20:00 - 21:30Kvintett frá New York | Við Djúpið

Tónleikasalurinn Hamrar, Ísafirði: Klarinettukvintett frá New York The Declassified Klarinettukvintett frá the Declassified leikur á tvennum tónleikum á tónlistarhátiðinni Við Djúpið í ár. Á þeim fyrri eru 4 verk eftir 20. aldar tónskáldin Arvo Pärt, James Macmillan, Kimmo Hakola og David Bruce. Verkin eiga það öll sameiginlegt að vera ný af nálinni, samin á síðustu 30 árum. Miðasala við innganginn. The Declassified er nýr kammerhópur stofnaður í Carnegie Hall í New York Hópurinn er eingöngu skipaður ungu afburðar tónlistarfólki sem hefur útskrifast úr The Academy, sem er samstarfsverkefni Carnegie Hall, Juilliard tónlistarháskólans og Weill stofnunarinnar. Meðlimir hópsins leitast við að kanna leiðir til þess að víkka út klassíska tónleikaformið og til að höfða til tónleikagesta á ólíkan hátt. The Declassified stendur fyrir samfélagsverkefnum sem hafa það að leiðarljósi að kynna tónlist fyrir ólíkum þjóðfélagshópum. Hópurinn hefur komið fram vítt og breitt um heiminn frá árinu 2010, m.a. á Spáni, í Mexíkó, Suður-Afríku, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Þýskalandi og Japan og vakið mikla og verðskuldaða athygli. Hópurinn kom fram á tónlistarhátíðinni Við Djúpið sumarið 2011 undir heitinu Ensemble ACJW og frumflutti meðal annars þrjú verk nýrra tónskálda. Nánar á www.viddjupid.is

til baka í viðburðiSkrá viðburð


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi