Viðburður

Mynd með frétt

19.06.2012 | 20:00 - 21:30Opnunarhátið Við Djúpið | Jorja Fleezanis

Jorja Fleezanis, fiðla Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó 10. tónlistarhátíðin Við Djúpið opnar formlega með tónleikum eins aðalkennara hennar, Jorja Fleezanis, fiðluleikara frá Bandaríkjunum. Með henni kemur fram Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari. Á efnisskránni eru m.a. sónötur fyrir fiðlu og píanó eftir Leoš Janácek og Claude Debussy ásamt nýlegu verki eftir Sir John Kenneth Tavener. Tónleikarnir fara fram í Hömrum. Miðasala við innganginn. Jorja Fleezanis gegndi stöðu konsertmeistara Sinfóníhljómsveitarinnar í Minnesota frá 1989 til 2009. Hún hefur einnig starfað við Sinfóníuhljómsveitirnar í San Francisco og Chicago. Hún hefur leitt fílharmóníurnar Los Angeles undir stjórn Esa Pekka Salonen og Hong Kong undir stjórn Ton Koopman. Kennsla er Jorju hugleikin. Hún hefur kennt á námskeiðum og tónlistarhátíðum víða um heim; við Tónlistarháskólann í Boston og Juilliard tónlistarháskólann auk þess að hafa verið fastur kennari við Tónlistarháskólann í Minnesota frá 1990. Jorja er meðlimur FOG tríósins frá San Francisco, einn stofnenda Chamber music Sundaes tónleikaraðarinnar sem og Cincinnatti kammersveitarinnar. Fjöldi tónverka hafa verið samin sérstaklega fyrir hana m.a. konsert eftir John Adams og Ikon of Eros eftir John Tavener. Hún heimsfrumflutti einnig sónötu eftir Nicholas Maw. Þá hafa fjölmargar upptökur með leik hennar hafa verið gefnar út. Nánar: www.viddjupid.is

til baka í viðburðiSkrá viðburð


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi