08.05.2012 | 18:00 - 19:00VORSÖNGVAR - kórtónleikar í Ísafjarðarkirkju
Sumarlegir kórtónleikar verða í Ísafjarðarkirkju kl. 18:00 þriðjudaginn 8.maí næstkomandi. Um er að ræða vortónleika Barna- og Skólakórs Tónlistarskóla Ísafjarðar. Dagskráin er fjölbreytt og glaðleg, m.a. syngur Barnakórinn lög úr söngleiknum Mary Poppins og hið fræga lag Mugisons „Stingum af". en Skólakórinn syngur lög úr ýmsum áttum. Barnakórinn er skipaður börnum í 2.-5.bekk en Skólakórinn börnum í 6.-10.bekk. Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir stjórnar kórunum en Hulda Bragadóttir leikur með á píanó, en ýmsir kórfélagar aðstoða einnig með leik á ásláttarhljóðfæri.aujk þess sem nokkrir þeirra syngja einsöng í nokkrum lögum. Meðf.mynd var tekin á skólaslitum T.Í. 2011til baka í viðburðiSkrá viðburð