Frétt

Sólstafakonur opna heimasíðu félagsins formlega í húsakynnum Snerpu.
Sólstafakonur opna heimasíðu félagsins formlega í húsakynnum Snerpu.

bb.is | 04.04.2007 | 10:39Sólstafir opna heimasíðu

Ný heimasíða Sólstafa Vestfjarða, systrasamtaka Stígamóta hér vestra, var formlega opnuð í húsakynnum tölvuþjónustunnar Snerpu á Ísafirði í morgun. Forystukonur Sólstafa hafa unnið að gerð heimasíðunnar undanfarnar vikur í samstarfi við Snerpu, en fyrirtækið gefur alla vinnu við síðuna, hönnun hennar og uppsetningu. Inni á síðunni má finna fréttir af starfinu, greinar, upplýsingar um Sólstafi, fjölmarga tengla inn á hjálplegar síður o.fl. Í tilkynningu frá Sólstöfum kemur fram að allar ábendingar um efni sem gæti átt heima á síðunni eru vel þegnar. Þá vilja Sólstafakonur þakka Snerpu auðsýnda velvild og hjálpsemi, sérstaklega Ágústi Atlasyni, sem vann heimasíðuna að mestu.

tinna@bb.is

Heimasíða Sólstafa



Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli