Frétt

Séð yfir Súðavík að vetri til.
Séð yfir Súðavík að vetri til.

bb.is | 16.01.2013 | 14:02Átján ár frá snjóflóðinu í Súðavík

Í dag eru 18 ár síðan eitt mannskæðasta snjóflóð Íslandssögunnar féll á byggðina í Súðavík með þeim afleiðingum að 14 manns létu lífið, þar af 8 börn. Þann 16. janúar árið 1995 féll flóðið og tók með sér 15 íbúðarhús, en í þeim voru 26 einstaklingar. Flest þau hús sem lentu í snjóflóðinu stóðu fyrir utan skilgreind snjóflóðahættusvæði. Hættusvæðið hafði verið miðað við snjóflóð sem féll árið 1983, en þá hafði fallið snjóflóð rétt sunnan við staðinn þar sem flóðið féll árið 1995.
Flóðið féll kl. 06.25, og hófu heimamenn samstundis björgunaraðgerðir. Fyrsta hjálp björgunarsveitamanna barst kl. 10.00 þegar tugir björgunarsveitamanna, lækna og hjúkrunarfræðinga komu ásamt leitarhundum frá Ísafirði.

Veðurfar daganna áður en snjóflóðið féll minnti mikið á veðrið á undan óveðrinu á norðanverðum Vestfjörðum laust fyrir síðustu áramót. Snjó hafði kyngt niður dagana áður en flóðið féll, en ofsaveður geisaði á meðan flóðið féll og allan tímann á meðan björgunarsveitir sinntu björgunaraðgerðum.

gudmundur@bb.is

bb.is | 22.05.13 | 16:50 Sjófarendur án FM-sendinga

Mynd með frétt Í kjölfar þess að mastur Ríkisútvarpsins á Þverfjalli, sem er í 750 metra hæð milli Skutulsfjarðar og Önundarfjarðar, lagðist á hliðina í fárviðri sem gekk yfir Vestfirði í lok janúar, var hafist handa við að tryggja FM-sendingar á þeim stöðum sem ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 14:48Fylgst með skriðuhættu

Mynd með fréttVegagerðin og verktakinn sem sá um vinnu við veginn um Kjálkafjörð, þegar stór skriða féll á veginn 23. apríl og lokaði honum, munu fylgjast með skriðuhættu á svæðinu og því getur komið til fyrirvararlítilla lokana ef minnsta hætta er á ferðum, ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 13:02Heimilisköttur ungrar stúlku fannst skotinn í fjörunni

Mynd með fréttHeimilisköttur ungrar stúlku sem hafði verið týndur í þrjá daga, fannst dauður á hafnarsvæðinu í Bolungarvík í gær. Kötturinn hafði verið skotinn. „Þetta var lítil snjóhvít læða með svörtum blett. Krakkar úr skólanum sáu köttinn í fjörunni og létu vita. Við ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 10:57Heiðruðu Villa Valla með söng

Mynd með frétt„Það var annað tímabil á ferli Æfingar þegar við vorum komnir í pásu en héldum áfram. Þá með Söru Vilbergs (eldri) og gengum undir nafninu „Systir Sara og Asnarnir“, segir Árni Benediktsson gítarleikari Æfingar en hljómsveitin kom saman á rakarastofu Vilbergs ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 09:16Innheimtu ekki úthlutaða styrki

Mynd með fréttEkki hafa öll framboð til bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar innheimt úthlutaða styrki undanfarin þrjú ár þrátt fyrir að öll framboðin hafi fengið bréf um árlega úthlutun. Málið var rætt á fundi bæjarráðs sem haldinn var í gær. B-listi Framsóknarflokks hefur ekki innheimt úthlutaða ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 07:44Ísafjarðarbær styrkir menningarstarfsemi í Edinborgarhúsinu

Mynd með fréttRekstur Edinborgarhússins á Ísafirði hefur verið erfiður eins og greint hefur verið frá hér í blaðinu og er þá sérstaklega átt við menningarhluta starfseminnar, Menningarmiðstöðina Edinborg, sem glímir við verulegan fjárskort sem hamlar þróun og eflingu starfseminnar að sögn Ólafar Dómhildar ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 16:49Uppbygging á Torfnesi á viðræðustigi

Mynd með frétt„Framkvæmdirnar á Torfnesi hljóða í mesta lagi upp á sjö milljónir króna á þessu ári. Það er því af og frá að Ísafjarðarbær sé að fara veita 64 milljónum króna í framkvæmdir við Torfnesvöll, eins og einhverjir virðast hafa haldið,“ segir ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 14:47„Þarf að vera almenn sátt um ímynd Vestfjarða“

Mynd með frétt„Þegar samfélagið á þátt í stefnumótun í ferðaþjónustunni þá smitar það út frá sér og leiðir af sér félagsleg mikilvæg lífsgæði fyrir okkur, fólkið sjálft,“ segir Ásbjörn Björgvinsson formaður Ferðamálasamtaka Íslands. Hann segir aukið þjónustustig við ferðafólk ekki aðeins leiða ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 13:01Verður erfitt en skemmtilegt

Mynd með frétt„Tilhlökkunin er miklu meiri en kvíðinn,“ segir Óskar Jakobsson, sem eftir rúma viku leggur af stað hlaupandi frá Reykjavík til Ísafjarðar. „Ég er búinn að æfa mjög stíft undanfarnar vikur og hleyp þá langt en ekki hratt til að geta haldið ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 10:56Rekstur Edinborgarhússins erfiður

Mynd með frétt„Það er alveg ljós að það er ekkert einsdæmi að rekstur Edinborgarhússins sé í járnum, þar sem rekstur menningarstofnana gengur mjög brösuglega um þessar mundir á landsvísu. Það er einna helst á Austurlandi þar sem eitthvað sést til lands. Þar voru ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi