Frétt

Grunnskólinn á Ísafirði.
Grunnskólinn á Ísafirði.

bb.is | 10.09.2012 | 14:58Færri notað hass og maríjúana

Hlutfallslega færri nemendur í áttunda, níunda og tíunda bekk í grunnskólum Ísafjarðarbæjar telja maríjúananotkun og hassnotkun vera hættulega, heldur en á landinu öllu. Athygli vekur að færri nemendur í Ísafjarðarbæ hafa hinsvegar prófað hass eða maríjúana heldur en á landsvísu. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu um hagi og líðan ungs fólks í Ísafjarðarbæ árið 2012. 81% nemenda í áttunda bekk í Ísafjarðarbæ telur maríjúana hættulegt, 12% nemenda tóku ekki afstöðu og 7% þeirra voru ósammála þeirri fullyrðingu. 77% nemenda í níunda bekk telja það hættulegt, 15% tóku ekki afstöðu og 9% nemenda töldu maríjúana ekki hættulegt.

Í tíunda bekk lækkar talan enn frekar meðal ungmenna Ísafjarðarbæjar sem telja maríjúana hættulegt, en 67% prósent nemenda eru sammála fullyrðingunni. 17% eru ósammála henni og 15% tóku ekki afstöðu. 74% nemenda í áttunda bekk í Ísafjarðarbæ telja hassnotkun hættulega, 81% í níunda bekk og 78% í tíunda bekk. Er sú tala einnig lægri í Ísafjarðarbæ en á landsvísu. 19% nemenda í áttunda bekk tóku ekki afstöðu til fullyrðingarinnar, 15% í níunda bekk og 15% í tíunda bekk. 7% voru ósammála henni í áttunda bekk, 4% í níunda bekk og 7% í tíunda bekk.

Athygli vekur að færri nemendur í Ísafjarðarbæ hafa notað hass eða maríjúana einu sinni eða oftar um ævina, heldur en á landinu öllu. 4% nemenda í tíunda bekk í Ísafjarðarbæ segjast hafa notað hass eða maríjúana, en 7% á landsvísu. Í níunda bekk segjast 2% nemenda í Ísafjarðarbæ hafa notað hass eða maríjúana, en 3% á landsvíu. Í áttunda bekk hafa 0% nemenda notað hass eða maríjúana, en 2% á landsvísu.

gudmundur@bb.is

bb.is | 22.05.13 | 13:02 Heimilisköttur ungrar stúlku fannst skotinn í fjörunni

Mynd með frétt Heimilisköttur ungrar stúlku sem hafði verið týndur í þrjá daga, fannst dauður á hafnarsvæðinu í Bolungarvík í gær. Kötturinn hafði verið skotinn. „Þetta var lítil snjóhvít læða með svörtum blett. Krakkar úr skólanum sáu köttinn í fjörunni og létu vita. Við ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 10:57Heiðruðu Villa Valla með söng

Mynd með frétt„Það var annað tímabil á ferli Æfingar þegar við vorum komnir í pásu en héldum áfram. Þá með Söru Vilbergs (eldri) og gengum undir nafninu „Systir Sara og Asnarnir“, segir Árni Benediktsson gítarleikari Æfingar en hljómsveitin kom saman á rakarastofu Vilbergs ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 09:16Innheimtu ekki úthlutaða styrki

Mynd með fréttEkki hafa öll framboð til bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar innheimt úthlutaða styrki undanfarin þrjú ár þrátt fyrir að öll framboðin hafi fengið bréf um árlega úthlutun. Málið var rætt á fundi bæjarráðs sem haldinn var í gær. B-listi Framsóknarflokks hefur ekki innheimt úthlutaða ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 07:44Ísafjarðarbær styrkir menningarstarfsemi í Edinborgarhúsinu

Mynd með fréttRekstur Edinborgarhússins á Ísafirði hefur verið erfiður eins og greint hefur verið frá hér í blaðinu og er þá sérstaklega átt við menningarhluta starfseminnar, Menningarmiðstöðina Edinborg, sem glímir við verulegan fjárskort sem hamlar þróun og eflingu starfseminnar að sögn Ólafar Dómhildar ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 16:49Uppbygging á Torfnesi á viðræðustigi

Mynd með frétt„Framkvæmdirnar á Torfnesi hljóða í mesta lagi upp á sjö milljónir króna á þessu ári. Það er því af og frá að Ísafjarðarbær sé að fara veita 64 milljónum króna í framkvæmdir við Torfnesvöll, eins og einhverjir virðast hafa haldið,“ segir ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 14:47„Þarf að vera almenn sátt um ímynd Vestfjarða“

Mynd með frétt„Þegar samfélagið á þátt í stefnumótun í ferðaþjónustunni þá smitar það út frá sér og leiðir af sér félagsleg mikilvæg lífsgæði fyrir okkur, fólkið sjálft,“ segir Ásbjörn Björgvinsson formaður Ferðamálasamtaka Íslands. Hann segir aukið þjónustustig við ferðafólk ekki aðeins leiða ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 13:01Verður erfitt en skemmtilegt

Mynd með frétt„Tilhlökkunin er miklu meiri en kvíðinn,“ segir Óskar Jakobsson, sem eftir rúma viku leggur af stað hlaupandi frá Reykjavík til Ísafjarðar. „Ég er búinn að æfa mjög stíft undanfarnar vikur og hleyp þá langt en ekki hratt til að geta haldið ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 10:56Rekstur Edinborgarhússins erfiður

Mynd með frétt„Það er alveg ljós að það er ekkert einsdæmi að rekstur Edinborgarhússins sé í járnum, þar sem rekstur menningarstofnana gengur mjög brösuglega um þessar mundir á landsvísu. Það er einna helst á Austurlandi þar sem eitthvað sést til lands. Þar voru ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 09:15Tökur hefjast á „Köldu vori“

Mynd með frétt„Það er einhver sérstakur galdur við Flateyri og þó þessi saga sé ekki um Flateyri eða ákveðna Flateyringa, þá er hún einhvern veginn mjög flateyrísk,“ segir Sindri Páll Kjartansson framleiðandi íslensku kvikmyndarinnar „Kalt vor“ en tökulið myndarinnar, leikstjóri og leikmyndahönnuðir hafa ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 07:43Pólsk kvikmyndahátíð á Ísafirði

Mynd með frétt„Þetta eru mjög flottar myndir og verður skemmtilegur viðburður fyrir okkur hér í pólska samfélaginu á norðanverðum Vestfjörðum,“ segir Sebastian Ludwin, þjónandi prestur kaþólsku kirkjunnar. Sebastian sá aðal myndirnar á kvikmyndadögum í Bíó Paradís í lok apríl og segir þær báðar ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi