 Matjurtarækt og sjálfþurftarbúskapur hefur notið aukinna vinsælda undanfarin misseri. |
bb.is | 08.09.2012 | 09:13Ísafjarðardeild Garðyrkjufélagsins endurvakin
Matjurtarækt og sjálfþurftarbúskapur hefur notið aukinna vinsælda undanfarin misseri. Það kemur því kannski ekki mörgum á óvart að til stendur að endurreisa Ísafjarðardeild Garðyrkjufélags Íslands. Starfsemi deildarinnar hefur legið niðri um langt skeið en allstór hópur félagsmanna Garðyrkjufélags Íslands býr á svæðinu og því er talið eðlilegt að þar starfi öflug félagsdeild. Jafnframt hefur áhugi á garðrækt, einkum matjurta- og ávaxtarækt, aukist mjög síðustu ár.
Innan Garðyrkjufélags Íslands eru starfandi svæðisbundnar deildir víða um landið. Margar hverjar eru með öflugt félagsstarf s.s.fræðsluerindi, kennslu í fræsöfnun, uppskeruhátíðir, skoðunarferðir og plöntuskiptadaga. Innan félagsins eru einnig starfandi klúbbar s.s. ávaxtaklúbbur, matjurtaklúbbur og sumarhúsaklúbbur.
Á heimasíðu Garðyrkjufélagsins er ýmiskonar fróðleikur um ræktun og ábendingar fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref. Stofnfundur félagsins verður haldinn á Edinborg-Bistro á fimmtudag og búist er við margmenni.
lisbet@bb.is
Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur á Ísafirði og fyrrverandi alþingismaður er meðal umsækjenda um stöðu forseta hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Spurð frétta um ráðningu í stöðuna segir hún: „Það eru komin drög að hæfnisdómi en umsækjendum er gefinn kostur á að ...
Meira
Tæplega 20.000 manns, og hefur farið ört fjölgandi, hafa skrifað undir yfirlýsinguna „Við undirrituð hvetjum Alþingi til að samþykkja ekki frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum 74 frá 26. júní 2012 þar sem skilgreind eru þau gjöld sem útgerðinni ber að ...
Meira
Í dag eru 98 ár síðan konur yfir fertugu öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla. Í tilefni dagsins er boðið upp á fjölbreytta dagskrá víða um landið. Að sögn Hrafnhildar Hrannar Óðinsdóttur, málpípu Femínistafélags Vestfjarða, ætlar félagið í tilefni dagsins ...
Meira
Í kjölfar vinnustofudvalar Ragnars Kjartanssonar myndlistarmanns á Galtarvita verður haldinn Jónsmessufögnuður á miðnætti aðfaranótt 24. júní. Bátsferðir verða í boði frá Suðureyri 23. júní kl. 11 og 17 og hægt verður að tjalda á staðnum eða gista í svefnpokaplássi. Allt frá ...
Meira
„Síðasta vika var söguleg fyrir okkur, en þá komu rútur frá skemmtiferðaskipunum í fyrsta skipti til Súðavíkur. Það er í fyrsta sinn sem við tökum á móti ferðamönnum í þessum fjölda. Melrakkasetrið verkur mikla athygli, við eigum nóg af náttúruperlum, það ...
Meira
Að sögn sr. Magnúsar Erlingssonar sóknarprests kemur töluvert af ferðamönnum í Ísafjarðarkirkju til að nota salernisaðstöðuna sem þar er. Fólki sé auðvitað alltaf velkomið til að nýta aðstöðuna þar. Bæjaryfirvöld þurfi hins vegar að hugsa málið til enda þegar kemur að ...
Meira
Tónlistarhátíðin Við Djúpið hefst á morgun, miðvikudag, á því að Örn Elías Guðmundsson eða Mugison eins og hann er betur þekktur fleytir hátíðinni af stað með hádegistónleikum kl. 12.10 í Grunnskóla Ísafjarðar. Opnunarhátíðin fer svo fram kl. 20 í Hömrum, menningarhúsi ...
Meira
Afhjúpaður var í eynni Vigur á Ísafjarðardjúpi á föstudag minnisvarði um Sigurð Bjarnason frá Vigur, en hann lést í janúar á síðasta ári, 96 ára að aldri. Sigurður lét eftir sig eiginkonu, Ólöfu Pálsdóttur myndhöggvara, og tvö börn, Hildi Helgu og ...
Meira
Mikið var um dýrðir á Ísafirði í gær, þjóðhátíðardag Íslendinga, og margir mættu prúðbúnir í bæinn eins og sést á meðfylgjandi myndum. Hátíðarhöldin hófust með skrúðgöngu frá Silfurtorgi þar sem lögreglan og skátarnir fóru í fararbroddi að Eyrartúni þar sem skemmtidagskráin ...
Meira
Eiríkur Örn Norðdahl er Ísfirðingum að góðu kunnur enda fæddur og uppalinn í bænum. Hann hefur getið sér gott orð sem einn af framsæknustu rithöfundum þjóðarinnar og jafnframt er hann handhafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár fyrir skáldsöguna Illsku. Hún fór sigurför ...
Meira