Frétt

Séð yfir Urðarveg af Gleiðarhjalla.
Séð yfir Urðarveg af Gleiðarhjalla.

bb.is | 20.08.2012 | 16:48Tafir á framkvæmdum undir Gleiðarhjalla

Heildarkostnaður við gerð varnargarða fyrir neðan Gleiðarhjalla á Ísafirði verður um 860 milljónir króna samkvæmt nýjustu kostnaðaráætlun Ísafjarðarbæjar. Hönnun varnargarðsins er nánast lokið og því verða útboðsgögn að öllum líkindum útbúin fljótlega. Þó er ljóst að varnargarðarnir verða ekki tilbúnir fyrr en 2015, þar sem aðveitustöð undir Gleiðarhjalla verður ekki að fullu flutt fyrr en eftir eitt og hálft ár. Samningar náðust á milli Landsnets og Orkubús Vestfjarða um flutning á stöðinni inn í Tungudal, en til þess að framkvæmdir geti hafist undir Gleiðarhjalla er nauðsynlegt að hún verði flutt.

Því gerir Ísafjarðarbær ráð fyrir því að bjóða út lagnafærslu í haust og vonast til að þeim verkhluta verði lokið fyrir áramót. Verkhönnuðir vinna nú útboðsgögn og ættu þau að vera tilbúin um næstu mánaðamót.

Bærinn áætlar að bjóða út snjóflóðagarða A og 3 í vetur, en þeir verða yfir Urðarvegi 33-80. Framkvæmdir hefjast þar næsta vor, en áætlað er að verkefnið taki tvö ár. Bærinn mun bjóða út snjóflóðagarða 4a og 4b veturinn 2014-2015 og hefja framkvæmdir þar vorið 2015, og er það verkefni einnig til tveggja ára. Garðar 4a og 4b verða fyrir ofan Urðaveg 20-30.

Ísafjarðarbær hefur samið við Landsnet um kostnaðarskiptingu vegna flutnings á 66 kwh streng. Samkomulagið gengur út á að Ísafjarðarbær greiði 63,5 milljónir króna fyrir verkið, en Ofanflóðastyrkur styrkir Ísafjarðarbæ um 90% af þeim kostnaði. Samningar við Orkubú Vestfjarða um kostnaðarskiptingu vegna flutnings á 11kV strengjum verða brátt tilbúnir, en gert er ráð fyrir að kostnaður verkkaupa verði um 20 milljónir króna.

gudmundur@bb.is



bb.is | 19.05.13 | 09:20 Viðburðaríkt sumar að Hnjóti

Mynd með frétt „Það hefur gengið mjög vel að skipuleggja afmælisárið. Það er spenningur hér yfir dagskránni og því hvernig hún muni fara í gesti, jafnt heimafólk sem ferðamenn,“ segir Heiðrún Konráðsdóttir, forstöðukona Minjasafns Egils Ólafssonar að Hnjóti í Örlygshöfn. Viðburðir sumarsins er settir ...
Meira

bb.is | 18.05.13 | 10:43Kræklingarækt og fiskeldi fara vel saman

Mynd með frétt„Það er mjög margt sem mælir með því að fiskeldi og kræklingarækt fari vel saman, meðal annars vegna þess að umhverfisáhrif sjókvíaeldis geta hugsanlega minnkað ef kræklingarækt er byggð upp samhliða uppbyggingu á sjókvíaeldi,“ segir Shiran Þórisson hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða. Verkefni ...
Meira

bb.is | 18.05.13 | 09:17Undirbúningurinn kominn á fullt

Mynd með frétt„Undirbúningurinn er kominn á fullt. Það verður stærra mót í ár, fleiri vellir, fleiri lið, fleira fólk og meira gaman. Við erum að vinna í að bæta umgjörðina, fá betri aðstöðu fyrir gesti og keppendur,“ segir Jóhann Bæring Gunnarsson, drullusokkur Evrópumeistaramótsins ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 16:50Kaupir af Byggingarfélagi eldri borgara

Mynd með fréttSamningur um kaup Bolungarvíkurkaupstaðar á fyrstu hæð Aðalstrætis 20 ásamt hluta kjallara af Byggingarfélagi eldri borgara var undirritaður og handsalaður í gær. Hér er um að ræða stóran áfanga í nýja hjúkrunarheimilinu í Bolungarvík. Upphaflega var áformað að á fyrstu hæð ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 14:48Ríkið tekur fjármuni frá sjávarbyggðunum

Mynd með frétt„Augljóslega er verið að taka mikla fjármuni úr sjávarbyggðunum með sérstakri skattlagningu á eina atvinnugrein, sjávarútveginn. Ekkert af sérstaka veiðigjaldinu rennur hins vegar til sveitarfélaganna,“ segir Elías Jónatansson, bæjarstjóri í Bolungarvík, aðspurður hvort sveitarfélög þar sem útgerð er stunduð njóti einhvers ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 13:02Gjaldtaka styður uppbyggingu og öryggi

Mynd með frétt„Ég er fylgjandi því að tekið verði einhvers konar gjald af ferðafólki sem heimsækir ferðamannastaði til að standa undir uppbyggingu þar. Hins vegar er ég enn hlynntari því að unnið verði miklu markvissara að því að dreifa ferðamönnum víðar um landið. ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 10:55Styttist í komu fyrstu skipanna

Mynd með fréttFyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kemur til Ísafjarðar 6. júní nk., og með því 3.300 farþegar. Að sögn Guðmundar M. Kristjánssonar, hafnarstjóra Ísafjarðarhafna, er um nokkra aukningu að ræða frá fyrra sumri. Ekki er gert ráð fyrir aukningu á skipakomum á næsta ári ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 09:14Ósanngjarnt að taka eina grein út úr

Mynd með fréttSkoðanir varðandi hugsanlegt afnám hins sérstaka veiðigjalds eru mjög skiptar eins og m.a. hefur komið fram hér á vefnum, bæði hjá Óðni Gestssyni hjá Íslandssögu hf. á Suðureyri og Ólínu Þorvarðardóttur fráfarandi alþingismanni. Sigurður Viggósson framkvæmdastjóri Odda hf. á Patreksfirði er ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 07:42Ný námsleið við Háskólasetrið

Mynd með fréttSamningur um nýja námsleið við Háskólasetur Vestfjarða verður undirritaður á aðalfundi Háskólasetursins sem fram fer á föstudag. Hin nýja námsleið nefnist „Sjávartengd nýsköpun“ og er samstarfsverkefni Háskólasetursins og Háskólans á Akureyri. Að sögn Peter Weiss, forstöðumanns Háskólasetursins, hefur lengi verið unnið ...
Meira

bb.is | 16.05.13 | 16:49Fjárhagsstaðan batnar verulega

Mynd með frétt„Þróunin í fjármálum bæjarins er mjög ánægjuleg,“ segir Elías Jónatansson, bæjarstjóri í Bolungarvík. „Hvað varðar lækkun skulda erum við núna búin að ná árangri sem við reiknuðum ekki með að ná fyrr en á árinu 2014.“ Rekstur kaupstaðarins gekk vel á ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi