bb.is | 18.08.2012 | 12:21Formaður BÍ/Bolungarvíkur: Enginn með kynþáttafordóma
Samúel Samúelsson, formaður knattspyrnudeildar BÍ/Bolungarvíkur, segir að enginn leikmaður liðsins hafi verið með kynþáttafordóma í garð Chukwudi Chijindu framherja Þórs í leik liðanna í gærkvöldi. Chijindu fékk rauða spjaldið eftir 3-2 sigur Þórs í kvöld eftir að honum og Mark Tubæk lenti saman.
Chijindu henti boltanum í andlitið á Tubæk og fékk að líta rauða spjaldið. Hafsteinn Rúnar Helgason, BÍ/Bolungarvík, fékk einnig rautt fyrir þátt sinn í látunum og þeir Guiseppe Funicello og Tubæk fengu áminningu.
Eftir leikinn sakaði Chijindu leikmenn BÍ/Bolungarvíkur um að hafa verið með kynþáttafordóma í sinn garð.
,,Það er sorglegt að þessir leikmenn þurfi að nota niðrandi ummæli sem vísa að kynþætti mínum í miðjum leik. Það hefur ekki áhrif á mig, þetta er bara olía á eldinn," sagði Chijindu á Twitter eftir leikinn í kvöld.
Samúel segir að hvorki Tubæk né aðrir leikmenn BÍ/Bolungarvíkur hafi verið með kynþáttafordóma í kvöld.
,,Við vísum því alfarið á bug að nokkur leikmaður BÍ/Bolungarvíkur hafi verið með kynþáttafordóma gegn þessum leikmanni," sagði Samúel við Fótbolta.net seint í gærkvöldi.
,,Við erum með leikmenn sem eru dökkir á hörund í liði okkar og höfum verið með í gegnum tíðina. Við erum ekki sáttir með svona ásakanir og vísum þeim alfarið á bug. Þessi umræddi leikmaður fór alfarið yfir strikið gegn leikmanni okkar og sagði ljót orð sem ekki eru við hæfi á prenti.
Frétt frá Fótbolta.net.
thelma@bb.is
bb.is | 20.05.13 | 10:44 Þjálfar hunda sem taka úr þvottavél
Meira
bb.is | 20.05.13 | 09:21Fjórir bátar Byggðasafnsins fá aðhlynningu í sumar
Meira
bb.is | 19.05.13 | 10:43Iðja fyrir fólk sem hefur lítið fyrir stafni
Meira
bb.is | 19.05.13 | 09:20Viðburðaríkt sumar að Hnjóti
Meira
bb.is | 18.05.13 | 10:43Kræklingarækt og fiskeldi fara vel saman
Meira
bb.is | 18.05.13 | 09:17Undirbúningurinn kominn á fullt
Meira
bb.is | 17.05.13 | 16:50Kaupir af Byggingarfélagi eldri borgara
Meira
bb.is | 17.05.13 | 14:48Ríkið tekur fjármuni frá sjávarbyggðunum
Meira
bb.is | 17.05.13 | 13:02Gjaldtaka styður uppbyggingu og öryggi
Meira
bb.is | 17.05.13 | 10:55Styttist í komu fyrstu skipanna
Meira