 Námskeiðsgestir skemmtu sér vel í náttúrufegurðinni í Önundarfirði. Mynd: theshetlandtrader.com |
bb.is | 20.08.2012 | 07:36Prjónuðu og nutu náttúrunnar í Holti
„Þetta er í þriðja sinn sem ég kem á Vestfirðina með svona hóp. Við vorum með prjónanámskeið í Holti og svo höfum við notið vestfirskrar náttúru til hins ýtrasta,“ segir Ragnheiður Eiríksdóttir, eigandi Knitting Iceland, en fyrirtækið sérhæfir sig í prjóni og prjónatengdum verkefnum eins og bókaútgáfu, mynddiskum og prjónanámskeiðum. Knitting Iceland stóð í síðustu viku fyrir prjónanámskeiði á Friðarsetrinu í Holti í Önundarfirði, en þátttakendur komu flestir frá Bandaríkjunum. „Það slæðist einnig með einn og einn Evrópubúi,“ segir hún.
Ragnheiður sérhæfir sig í íslensku lopapeysuprjóni og heldur heiðri þess á lofti hvar sem hún kemur. Hún heldur fjölda námskeiða á ári hverju í Bandaríkjunum, en Knitting Iceland er með aðstöðu í Reykjavík. „Ég kenni mikið og sæki prjónaráðstefnur. Einnig fer ég í verslanir og kynni íslensku ullina og breiði út fagnaðarerindið um íslenska lopapeysuprjónið,“ segir Ragnheiður, en á því er talsverður áhugi erlendis.
Þær Mary Jane Mucklestone og Gudrun Johnston voru gestakennarar á námskeiðinu. Þær eru sérfræðingar í svokölluðu fair isle prjóni og Hjaltlandseyjaprjóni. Á vefsíðunum maryjanemucklestone.com og theshetlandtrader.com má sjá skemmtilegar myndir af námskeiðshaldinu.
gudmundur@bb.is
Óvenju mikið er um stórar og umfangsmiklar framkvæmdir og fjárfestingar í Ísafjarðarbæ á næstu misserum. Um er að ræða verkefni sem sum hver hlaupa á hundruðum milljóna króna. Landsnet og Orkubú Vestfjarða hyggjast reisa 320m² hús að Skeiði 7 sem á ...
Meira
Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttalögmaður kannar þessa dagana möguleika á kæru vegna útboðs á almenningssamgöngum í Ísafjarðarbæ. Eigandi fjögurra fyrirtækja, Friðfinnur Sigurðsson á Þingeyri, sem lagði inn fjögur tilboð í verkið, hefur leitað til Sigurðar vegna þessa. Öll tilboð fyrirtækja Friðfinns voru ...
Meira
„Katrínu Júlíusdóttir þótti ekki við hæfi að skipa nýja stjórn Orkubúsins á síðustu starfsdögum sínum og því var ákveðið að fresta aðalfundinum,“ segir Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sem á sæti í stjórn fyrirtækisins, en aðalfundinn átti að halda í gær. Opinn ársfundur ...
Meira
Ný ríkisstjórn leggur ríka áherslu á að efla menntakerfið með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi samkvæmt stefnuyfirlýsingu. Þar segir að áhersla verði lögð á samráð við hagsmunaaðila þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi ríkisins um skipulag náms og kennslu. ...
Meira
Skipulagsstofnun telur að helstu neikvæðu áhrif fyrirhugaðra framkvæmda við Dýrafjarðargöng verði sjónræns eðlis og áhrif á landslag. Þetta kemur fram í áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum. Framkvæmdasvæðið er innan svæðis sem nýtur verndar vegna fjölbreytts og stórbrotins landslags og munu ...
Meira
„Við erum mjög heppin með bæinn okkar að hér sé kjarni bæjarins mjög heill og hápunktur Skúlamálanna hafi átt sér stað á þessum tíma. Þetta er mjög spennandi söguefni,“ segir Helga Hausner sem er einn þeirra Ísfirðinga sem taka á móti ...
Meira
Í kjölfar þess að mastur Ríkisútvarpsins á Þverfjalli, sem er í 750 metra hæð milli Skutulsfjarðar og Önundarfjarðar, lagðist á hliðina í fárviðri sem gekk yfir Vestfirði í lok janúar, var hafist handa við að tryggja FM-sendingar á þeim stöðum sem ...
Meira
Vegagerðin og verktakinn sem sá um vinnu við veginn um Kjálkafjörð, þegar stór skriða féll á veginn 23. apríl og lokaði honum, munu fylgjast með skriðuhættu á svæðinu og því getur komið til fyrirvararlítilla lokana ef minnsta hætta er á ferðum, ...
Meira
Heimilisköttur ungrar stúlku sem hafði verið týndur í þrjá daga, fannst dauður á hafnarsvæðinu í Bolungarvík í gær. Kötturinn hafði verið skotinn. „Þetta var lítil snjóhvít læða með svörtum blett. Krakkar úr skólanum sáu köttinn í fjörunni og létu vita. Við ...
Meira
„Það var annað tímabil á ferli Æfingar þegar við vorum komnir í pásu en héldum áfram. Þá með Söru Vilbergs (eldri) og gengum undir nafninu „Systir Sara og Asnarnir“, segir Árni Benediktsson gítarleikari Æfingar en hljómsveitin kom saman á rakarastofu Vilbergs ...
Meira