Frétt

Vanir sem óvanir þukluðu hrúta af áfergju á Íslandsmeistaramótinu í hrútadómum 2010.
Vanir sem óvanir þukluðu hrúta af áfergju á Íslandsmeistaramótinu í hrútadómum 2010.

bb.is | 18.08.2012 | 09:53Hrútaþuklarar streyma á Strandir

Hið árlega Íslandsmeistaramót í hrútadómum hefst á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum kl. 14 í dag. Þar verður keppt í tveimur flokkum, þeir sem eru vanir að stiga hrúta keppa um Íslandsmeistaratitil en einnig er keppt í flokki óvanra hrútaþuklara. Strandamenn eiga titil að verja þetta árið, en það var Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum sem sigraði í fyrra. Í hrútadómi, sem í daglegu tali nefnist hrútaþukl, reyna menn að meta gæði hrúta með hendurnar einar að vopni. Keppendur reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómnefnd sem hefur þegar metið hrútana með nútíma tækjum og tólum.

Fleira verður til skemmtunar og fróðleiks en keppnin sjálf, m.a. rúningur með gamla laginu í Kirkjubólsrétt. Dýrindis kaffihlaðborð verður á boðstólum á Sauðfjársetrinu allan daginn en kjötsúpa í hádeginu.

Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður nú haldið í tíunda sinn. Sú nýbreytni var í tengslum við keppnina á þessu ári að upphitun var fyrir dómana í gærkvöldi, en þá var haldið námskeið í hrútaþukli á Sauðfjársetrinu fyrir vana og óvana.

thelma@bb.is



bb.is | 18.06.13 | 15:58 Mugison með tónleika og leitin mikla að píanói

Mynd með frétt Tónlistarhátíðin Við Djúpið hefst á morgun, miðvikudag, á því að Örn Elías Guðmundsson eða Mugison eins og hann er betur þekktur fleytir hátíðinni af stað með hádegistónleikum kl. 12.10 í Grunnskóla Ísafjarðar. Opnunarhátíðin fer svo fram kl. 20 í Hömrum, menningarhúsi ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 14:48Minnisvarði um Sigurð frá Vigur

Mynd með fréttAfhjúpaður var í eynni Vigur á Ísafjarðardjúpi á föstudag minnisvarði um Sigurð Bjarnason frá Vigur, en hann lést í janúar á síðasta ári, 96 ára að aldri. Sigurður lét eftir sig eiginkonu, Ólöfu Pálsdóttur myndhöggvara, og tvö börn, Hildi Helgu og ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 13:03Mikið um dýrðir á þjóðhátíðardaginn

Mynd með fréttMikið var um dýrðir á Ísafirði í gær, þjóðhátíðardag Íslendinga, og margir mættu prúðbúnir í bæinn eins og sést á meðfylgjandi myndum. Hátíðarhöldin hófust með skrúðgöngu frá Silfurtorgi þar sem lögreglan og skátarnir fóru í fararbroddi að Eyrartúni þar sem skemmtidagskráin ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 10:54Helvítis basl að verða rithöfundur

Mynd með fréttEiríkur Örn Norðdahl er Ísfirðingum að góðu kunnur enda fæddur og uppalinn í bænum. Hann hefur getið sér gott orð sem einn af framsæknustu rithöfundum þjóðarinnar og jafnframt er hann handhafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár fyrir skáldsöguna Illsku. Hún fór sigurför ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 09:13Miklar framkvæmdir á Vestfjarðavegi við Breiðafjörð

Mynd með frétt„Við erum að vinna í fyllingum út í sjó og svo erum við búnir að vera í Kjálkafirði og erum þar að vinna við að steypa sökkla undir brú sem kemur þar og verður 116 metra löng. Í Mjóafirði erum við ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 07:41Tónlistarhátíðin Við Djúpið að hefjast

Mynd með fréttTónlistarhátíðin Við Djúpið fer fram á Ísafirði í ellefta skipti í sumar og byrjar á morgun. Hátíðin er venjulega haldin dagana í kringum sumarsólstöður þegar sólin er hvað hæst á lofti. Frá upphafi hefur námskeiðahald verið meginstef tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið. Framúrskarandi ...
Meira

bb.is | 17.06.13 | 10:19Gleðilega hátíð!

Mynd með fréttBæjarins besta og bb.is óska lesendum sínum gleðilegrar hátíðar, en í dag fagna Íslendingar stofnun lýðveldisins árið 1944. Í dag eru einnig 202 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar, helsta leiðtoga Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni, en hann fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. ...
Meira

bb.is | 17.06.13 | 09:19Hátíðarhöld á Hrafnseyri

Mynd með fréttHátíðardagskráin í dag, 17. júní, að Hrafnseyri við Arnarfjörð hefst kl. 12.30 með hátíðarguðsþjónustu í Hrafnseyrarkapellu þar sem Arnaldur Finnsson guðfræðingur predikar en séra Hildur Inga Rúnarsdóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari. Kirkjukór Þingeyrarkirkju syngur. Að guðsþjónustu lokinni verður boðið upp á ...
Meira

bb.is | 16.06.13 | 11:27Ég er frjáls - Melódíur minninganna

Mynd með fréttJón Kr. Ólafsson á Bíldudal söng inn á sína fyrstu plötu árið 1969. Á sínum tíma söng hann mikið með Ingibjörgu Guðmundsdóttur, en hún er einna þekktust í samhenginu BG og Ingibjörg. Hún gaf út sína fyrstu plötu árið 1970 og ...
Meira

bb.is | 16.06.13 | 09:20Heimilisofbeldi: Hópmeðferð fyrir börn hætt

Mynd með frétt„Þetta úrræði hefur ekki verið notað af okkur þar sem það hefur bara verið til boða fyrir sunnan. Ástæða þess að það er lagt niður er minnkandi þörf. Ég vil taka fram að börn sem búa við slíkar aðstæður hér munu ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi