Frétt

Samþykki var sexý á mýrarboltanum.
Samþykki var sexý á mýrarboltanum.

bb.is | 19.08.2012 | 10:35Engar tilkynningar af kynferðisbrotum

„Við erum afar ánægðar með gott samtarf og einnig hve öflug gæsla var á mótssvæðinu sem og öryggisgæsla í kringum aðra viðburði í tengslum við hátíðina,“ segir Sólstafakonur en eins og fram hefur komið höfðu forsvarsmenn Mýrarboltafélags Íslands samband við starfskonur Sólstafa Vestfjarða og óskuðu eftir samstarfi við fornvarnarstarf gegn kynferðisofbeldi á Evrópumeistaramótinu í mýrarbolta sem haldið var á Ísafirði um verslunarmannahelgina. „Við urðum af glöðu geði við þeirri ósk,“ segir Harpa Oddbjörnsdóttir.

Engar tilkynningar af brotum hafa borist Sólstafakonum og þær hafa ekki heyrt af tilkynningum til lögreglu um kynferðisbrot í tengslum við hátíðina. „Það er auðvitað mjög ánægjulegt en við verðum samt að hafa í huga að það getur veriðgríðarlega erfitt fyrir brotaþola að tilkynna slík mál og að fjöldi tilkynninga endurspeglar ekki endilega raunveruleikann. Við hvetjum því auðvitað þá einstaklinga sem hafa orðið fyrir einhverju að tilkynna eða leita sér aðstoðar,“ segir Harpa.

Sólstafakonur segia að þær hefði viljað sá örfá atriði framkvæmd betur, en það hafi ekki verið við mýrarboltafélagið að sakast. „Þar ber helst að nefna næturvakt á tjaldsvæðinu í Tungudal, aðeins einn var á vakt og einungis til kl 04:00. Hefðum við viljað sjá fleiri á vakt og þá allan sólarhringinn. Við tókum líka eftir því að fólk var oft eitt á ferli á göngu að kvöldi og nóttu til á milli miðbæjar og tjaldsvæðisins. Þar hefði jafnvel eitthvert rútufyrirtæki á svæðinu getað nælt sér í pening með reglulegum ferðum á milli fyrir sanngjarna upphæð. Þetta tvennt er eitthvað sem mætti huga að fyrir næsta mót,“ segir Harpa. Starfskona Sólstafa var mikið á ferðinni alla helgina og fór töluverður tími í það að keyra fólki á milli staða, sérstaklega ungum konum sem voru einar á ferð á næturnar.

Durex styrkti Sólstafi með því að gefa 1.000 smokka sem dreift var frítt á mýrarboltamótinu, og tóku þátttakendur og áhorfendur vel á móti þeirri gjöf. Límmiðar voru settir á smokkabréfin með sama slagorði og á barmmerkjunum. „Oft sköpuðust skemmtilegar og fræðandi umræður við unga fólkið þegar verið var að selja eða dreifa smokkunum,“ segir Harpa.

Mýrarboltafélagið lét útbúa barmmerki með merki Sólstafa ásamt slagorðinu „Samþykki er sexý“ og seldust merki fyrir um 200 þúsund krónur sem rennur til starfseminnar. Salan fór fram bæði á svæðinu sjálfu en mesta salan var þó á brennunni sem fór fram á hafnarsvæðinu á sunnudagskvöldið.

Þá var einnig hægt að kaupa barmmerkin hjá nokkrum fyrirtækjum í bænum og er enn hægt að nálgast þau þar. Bræðraborg, Kaffi Ísól, Stúdíó Dan og Vestfirska Verslunin eru með merkin til sölu á 1000 kr stk. „Salan er okkar fjármögnun fyrir starfsseminni og fer m.a. í að greiða leigu fyrir afnot af húsnæði sem og að afla okkur meiri þekkingar með því t.d. að sækja námskeið og fyrirlestra tengda málaflokknum en það er mjög mikilvægt fyrir okkur að halda við þekkingu og öðlast nýja,“ segir Harpa.

thelma@bb.is



bb.is | 24.05.13 | 16:50 Ferðamenn afbóka vegna ástand vegarins um Kjálkafjörð

Mynd með frétt „Ég veit ekki hvaða lýsingarorð á að nota, þetta er gjörsamlega út úr korti hvernig Vegagerðin bregst við þessari vá á þessum vegi. Eins og að loka klukkan 16 á föstudegi yfir hvítasunnuhelgina um óákveðinn tíma með þeirri skýringu að ekki ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 14:48Ástandið ógn við atvinnuöryggi

Mynd með fréttSveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps lítur þá stöðu sem komin er upp á þjóðvegi 60 í Kjálkafirði alvarlegum augum. Mesti annatími ársins sé að ganga í garð og fyrirtæki eigi mikið undir því komið að samgöngur séu eins og best verður á kosið. Núverandi ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 13:02Mikið bíósumar á Ísafirði

Mynd með frétt„Það er greinilegt að Ísfirðingar er mjög ánægðir með að bíó sé partur af menningarlífinu sem bærinn bíður uppá,“ segir Gróa Böðvarsdóttir hjá Ísafjarðarbíó en nú um helgina hefst sumarvertíðin af fullum krafti. „Þetta eru auðvitað þessar klassísku sumarmyndir sem við ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 10:53Stofnvísitalan segir ekki allt

Mynd með fréttMisræmi er á milli stofnvísitölu rækju og ráðlagðra veiða Hafrannsóknastofnunar undanfarinna ára. Afli á sóknareiningu CPUE, sem er afli í kílóum á hverja klukkustund togtímans, hefur haldist á svipuðu róli á árunum 1974-2011. Á fyrri árum var lagt til að veitt ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 09:12Algjörlega galið að stöðva rækjuveiðar

Mynd með fréttÚthafsrækjuveiðar verða stöðvaðar 1. júlí en til stendur að endurskoða skipulag rækjuveiða við landið sem hafa verið frjálsar undanfarin ár. Líklegt þykir að gefnar verði út aflaheimildir á skip en ekki eru allir sammála um útfærsluna. Fyrirkomulag undanfarinna ár hefur haft ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 07:40Samstarfssamningur undirritaður um sjávartengda nýsköpun

Mynd með fréttHáskólasetur Vestfjarða og Háskólinn á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning um meistaranám í haf- og strandveiðastjórnun. Auk áframhaldandi samstarfs um meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun felur samningurinn einnig í sér samstarf stofnanna tveggja um nýtt meistaranám, sjávartengda nýsköpun. Sjávartengd nýsköpun er nýstárleg ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 16:49Milljarða framkvæmdir í Ísafjarðarbæ

Mynd með fréttÓvenju mikið er um stórar og umfangsmiklar framkvæmdir og fjárfestingar í Ísafjarðarbæ á næstu misserum. Um er að ræða verkefni sem sum hver hlaupa á hundruðum milljóna króna. Landsnet og Orkubú Vestfjarða hyggjast reisa 320m² hús að Skeiði 7 sem á ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 14:47Kæruferli vegna útboðs?

Mynd með fréttSigurður G. Guðjónsson hæstaréttalögmaður kannar þessa dagana möguleika á kæru vegna útboðs á almenningssamgöngum í Ísafjarðarbæ. Eigandi fjögurra fyrirtækja, Friðfinnur Sigurðsson á Þingeyri, sem lagði inn fjögur tilboð í verkið, hefur leitað til Sigurðar vegna þessa. Öll tilboð fyrirtækja Friðfinns voru ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 13:01Aðalfundi Orkubús Vestfjarða frestað vegna nýrrar ríkisstjórnar

Mynd með frétt„Katrínu Júlíusdóttir þótti ekki við hæfi að skipa nýja stjórn Orkubúsins á síðustu starfsdögum sínum og því var ákveðið að fresta aðalfundinum,“ segir Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sem á sæti í stjórn fyrirtækisins, en aðalfundinn átti að halda í gær. Opinn ársfundur ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 10:58Mun aukin áhersla á verknám skila tilætluðum árangri?

Mynd með fréttNý ríkisstjórn leggur ríka áherslu á að efla menntakerfið með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi samkvæmt stefnuyfirlýsingu. Þar segir að áhersla verði lögð á samráð við hagsmunaaðila þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi ríkisins um skipulag náms og kennslu. ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi