Frétt

Jóhanna ÍS er mikið augnayndi.
Jóhanna ÍS er mikið augnayndi.

bb.is | 31.07.2012 | 16:47Viðgerðum á áttræðri trillu að ljúka

Viðgerðum á bátnum Jóhönnu ÍS er að ljúka en þær hafa staðið yfir frá árinu 2007 með hléum. Að sögn Jóns Sigurpálsson forstöðumanns Byggðasafns Vestfjarða er stefnt að því að uppbyggingu bátsins verði lokið að fullu í næsta mánuði. „Þetta er safngripur sem mun njóta sín í höfninni og vera augnayndi í legufæri,“ segir hann aðspurður um hvað verði um gripinn að viðgerðum loknum. Magnús Alfreðsson smiður á Ísafirði hefur haft veg og vanda að viðgerðunum en eins og Jón bendir á er skipið óneitanlega mjög fagur gripur.

Jóhanna var smíðuð árið 1929, í Bolungarvík, af Fal Jakobssyni, bátasmið frá Kvíum, fyrir (Einar) Ágúst Einarsson frá Dynjanda, og hefur hún alltaf verið kennd við þann stað. Hún er talin vera samkvæmt mælibréfi, 2.72 rúmlestir og lengd hennar stafna á milli, eins og fram kemur á s.st., 24 fet, eða rúmir 7 metrar. Jóhanna er smíðuð úr eik og furu. Gunnlaugur Á. Finnbogason, síðasti eigandi Jóhönnu, afhenti Byggðasafni Vestfjarða hana til varðveislu árið 1991.

Á vef Byggðasafnsins segir m.a. um bátinn: „Jóhanna er gott dæmi um trillu af minni gerðinni fyrir aðstæður í Ísafjarðardjúpi. „Falsbátarnir“ þóttu afbragðs sjóskip og einstaklega fallegir. Þeir voru léttbyggðir en verulega styrktir í smíðinni með mun þéttari, en grennri böndum, en almennt tíðkaðist. Lögun og gerð bátanna miðaðist við að hægt væri að taka þá á þurrt eftir hvern róður, var þetta nauðsynlegt þar sem hafnleysur voru. Burðarmagn þeirra var furðumikið og var eftir því tekið. „Þessir léttbyggðu og botnmiklu súgbyrðingar skoppuðu ofan á, á hverju sem gekk“, segir í Einars sögu Guðfinnssonar í Bolungarvík. Gunnlaugur Finnbogason útgerðarmaður á Ísafirði færði safninu bátinn að gjöf.“

thelma@bb.is

bb.is | 23.05.13 | 10:58 Mun aukin áhersla á verknám skila tilætluðum árangri?

Mynd með frétt Ný ríkisstjórn leggur ríka áherslu á að efla menntakerfið með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi samkvæmt stefnuyfirlýsingu. Þar segir að áhersla verði lögð á samráð við hagsmunaaðila þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi ríkisins um skipulag náms og kennslu. ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 09:17Helstu áhrif framkvæmda við Dýrafjarðargöng sjónræns eðlis

Mynd með fréttSkipulagsstofnun telur að helstu neikvæðu áhrif fyrirhugaðra framkvæmda við Dýrafjarðargöng verði sjónræns eðlis og áhrif á landslag. Þetta kemur fram í áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum. Framkvæmdasvæðið er innan svæðis sem nýtur verndar vegna fjölbreytts og stórbrotins landslags og munu ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 07:45Ísafjörður árið 1893

Mynd með frétt„Við erum mjög heppin með bæinn okkar að hér sé kjarni bæjarins mjög heill og hápunktur Skúlamálanna hafi átt sér stað á þessum tíma. Þetta er mjög spennandi söguefni,“ segir Helga Hausner sem er einn þeirra Ísfirðinga sem taka á móti ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 16:50Sjófarendur án FM-sendinga

Mynd með fréttÍ kjölfar þess að mastur Ríkisútvarpsins á Þverfjalli, sem er í 750 metra hæð milli Skutulsfjarðar og Önundarfjarðar, lagðist á hliðina í fárviðri sem gekk yfir Vestfirði í lok janúar, var hafist handa við að tryggja FM-sendingar á þeim stöðum sem ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 14:48Fylgst með skriðuhættu

Mynd með fréttVegagerðin og verktakinn sem sá um vinnu við veginn um Kjálkafjörð, þegar stór skriða féll á veginn 23. apríl og lokaði honum, munu fylgjast með skriðuhættu á svæðinu og því getur komið til fyrirvararlítilla lokana ef minnsta hætta er á ferðum, ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 13:02Heimilisköttur ungrar stúlku fannst skotinn í fjörunni

Mynd með fréttHeimilisköttur ungrar stúlku sem hafði verið týndur í þrjá daga, fannst dauður á hafnarsvæðinu í Bolungarvík í gær. Kötturinn hafði verið skotinn. „Þetta var lítil snjóhvít læða með svörtum blett. Krakkar úr skólanum sáu köttinn í fjörunni og létu vita. Við ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 10:57Heiðruðu Villa Valla með söng

Mynd með frétt„Það var annað tímabil á ferli Æfingar þegar við vorum komnir í pásu en héldum áfram. Þá með Söru Vilbergs (eldri) og gengum undir nafninu „Systir Sara og Asnarnir“, segir Árni Benediktsson gítarleikari Æfingar en hljómsveitin kom saman á rakarastofu Vilbergs ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 09:16Innheimtu ekki úthlutaða styrki

Mynd með fréttEkki hafa öll framboð til bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar innheimt úthlutaða styrki undanfarin þrjú ár þrátt fyrir að öll framboðin hafi fengið bréf um árlega úthlutun. Málið var rætt á fundi bæjarráðs sem haldinn var í gær. B-listi Framsóknarflokks hefur ekki innheimt úthlutaða ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 07:44Ísafjarðarbær styrkir menningarstarfsemi í Edinborgarhúsinu

Mynd með fréttRekstur Edinborgarhússins á Ísafirði hefur verið erfiður eins og greint hefur verið frá hér í blaðinu og er þá sérstaklega átt við menningarhluta starfseminnar, Menningarmiðstöðina Edinborg, sem glímir við verulegan fjárskort sem hamlar þróun og eflingu starfseminnar að sögn Ólafar Dómhildar ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 16:49Uppbygging á Torfnesi á viðræðustigi

Mynd með frétt„Framkvæmdirnar á Torfnesi hljóða í mesta lagi upp á sjö milljónir króna á þessu ári. Það er því af og frá að Ísafjarðarbær sé að fara veita 64 milljónum króna í framkvæmdir við Torfnesvöll, eins og einhverjir virðast hafa haldið,“ segir ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi