Frétt

Verðlaunahafar á mótinu. Ljósm: vikari.is.
Verðlaunahafar á mótinu. Ljósm: vikari.is.

bb.is | 01.08.2012 | 09:24Emil Þór og Hólmfríður sigruðu

Emil Þór Ragnarsson (GKG) sigraði í karlaflokki á golfmóti Endurskoðunar Vestfjarða sem haldið var á Syðridalsvelli í Bolungarvík á sunnudag. Emil Þór fór holurnar 18 á 72 höggum eða einu höggi yfir pari vallarins. Faðir hans, Ragnar Þór Ragnarsson (GKG) varð í 2. sæti á 73 höggum og Kristinn Kristjánsson (GÍ) varð þriðji á 76 höggum. Hólmfríður Einarsdóttir (GKG), sem er móðir Emils Þórs, sigraði í kvennaflokki á 93 höggum. Önnur varð Valdís Hrólfsdóttir (GBO) á 101 höggi og þriðja varð Sólveig Guðmunda Guðmundsdóttir (GBO) á 104 höggum.

Vilmar Ben Hallgrímsson (GÍ) sigraði í unglingaflokki en hann lék á 94 höggum en Alma Rún Ragnarsdóttir GKG varð önnur á 135 höggum. Einnig voru veitt verðlaun fyrir flesta punkta í karla- og kvennaflokki en í karlaflokki var Salmar Már Salmarsson Hagalín GÍ hlutskarpastur með 40 punkta, Guðvarður Þ. Jakobsson GBO varð annar með 39 punkta og Daði Arnarsson GBO varð þriðji með 37 punkta. Í kvennaflokki sigraði Petrína F. Sigurðardóttir GBO með 38 punkta, Daðey Steinunn Einarsdóttir GBO varð önnur með 28 punkta og Sigrún M. Sigurgeirsdóttir GÍ varð þriðja með 27 punkta.

Veitt voru nándarverðlaun á par þremur holum Syðridalsvallar sem hér segir:

3. hola: Magnús Gautur Gíslason GÍ - 1,50 metra frá holu
5. hola: Sævar Þór Ríkharðsson GÍ - 7,16 metra frá holu
12. hola: Sigurgeir Einar Karlsson GÍ - Hola í höggi!
14. hola: Daði Arnarsson GBO - 1,88 metra frá holu

Þá voru veitt verðlaun fyrir lengsta pútt á 9/18 flöt en þau verðlaun hreppti Sigurgeir Einar Karlsson GÍ en púttið hans mældist 4,51 metrar.

bb.is | 23.05.13 | 16:49 Milljarða framkvæmdir í Ísafjarðarbæ

Mynd með frétt Óvenju mikið er um stórar og umfangsmiklar framkvæmdir og fjárfestingar í Ísafjarðarbæ á næstu misserum. Um er að ræða verkefni sem sum hver hlaupa á hundruðum milljóna króna. Landsnet og Orkubú Vestfjarða hyggjast reisa 320m² hús að Skeiði 7 sem á ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 14:47Kæruferli vegna útboðs?

Mynd með fréttSigurður G. Guðjónsson hæstaréttalögmaður kannar þessa dagana möguleika á kæru vegna útboðs á almenningssamgöngum í Ísafjarðarbæ. Eigandi fjögurra fyrirtækja, Friðfinnur Sigurðsson á Þingeyri, sem lagði inn fjögur tilboð í verkið, hefur leitað til Sigurðar vegna þessa. Öll tilboð fyrirtækja Friðfinns voru ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 13:01Aðalfundi Orkubús Vestfjarða frestað vegna nýrrar ríkisstjórnar

Mynd með frétt„Katrínu Júlíusdóttir þótti ekki við hæfi að skipa nýja stjórn Orkubúsins á síðustu starfsdögum sínum og því var ákveðið að fresta aðalfundinum,“ segir Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sem á sæti í stjórn fyrirtækisins, en aðalfundinn átti að halda í gær. Opinn ársfundur ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 10:58Mun aukin áhersla á verknám skila tilætluðum árangri?

Mynd með fréttNý ríkisstjórn leggur ríka áherslu á að efla menntakerfið með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi samkvæmt stefnuyfirlýsingu. Þar segir að áhersla verði lögð á samráð við hagsmunaaðila þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi ríkisins um skipulag náms og kennslu. ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 09:17Helstu áhrif framkvæmda við Dýrafjarðargöng sjónræns eðlis

Mynd með fréttSkipulagsstofnun telur að helstu neikvæðu áhrif fyrirhugaðra framkvæmda við Dýrafjarðargöng verði sjónræns eðlis og áhrif á landslag. Þetta kemur fram í áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum. Framkvæmdasvæðið er innan svæðis sem nýtur verndar vegna fjölbreytts og stórbrotins landslags og munu ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 07:45Ísafjörður árið 1893

Mynd með frétt„Við erum mjög heppin með bæinn okkar að hér sé kjarni bæjarins mjög heill og hápunktur Skúlamálanna hafi átt sér stað á þessum tíma. Þetta er mjög spennandi söguefni,“ segir Helga Hausner sem er einn þeirra Ísfirðinga sem taka á móti ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 16:50Sjófarendur án FM-sendinga

Mynd með fréttÍ kjölfar þess að mastur Ríkisútvarpsins á Þverfjalli, sem er í 750 metra hæð milli Skutulsfjarðar og Önundarfjarðar, lagðist á hliðina í fárviðri sem gekk yfir Vestfirði í lok janúar, var hafist handa við að tryggja FM-sendingar á þeim stöðum sem ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 14:48Fylgst með skriðuhættu

Mynd með fréttVegagerðin og verktakinn sem sá um vinnu við veginn um Kjálkafjörð, þegar stór skriða féll á veginn 23. apríl og lokaði honum, munu fylgjast með skriðuhættu á svæðinu og því getur komið til fyrirvararlítilla lokana ef minnsta hætta er á ferðum, ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 13:02Heimilisköttur ungrar stúlku fannst skotinn í fjörunni

Mynd með fréttHeimilisköttur ungrar stúlku sem hafði verið týndur í þrjá daga, fannst dauður á hafnarsvæðinu í Bolungarvík í gær. Kötturinn hafði verið skotinn. „Þetta var lítil snjóhvít læða með svörtum blett. Krakkar úr skólanum sáu köttinn í fjörunni og létu vita. Við ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 10:57Heiðruðu Villa Valla með söng

Mynd með frétt„Það var annað tímabil á ferli Æfingar þegar við vorum komnir í pásu en héldum áfram. Þá með Söru Vilbergs (eldri) og gengum undir nafninu „Systir Sara og Asnarnir“, segir Árni Benediktsson gítarleikari Æfingar en hljómsveitin kom saman á rakarastofu Vilbergs ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi