 Ögur í Ísafjarðardjúpi. |
bb.is | 19.07.2012 | 14:56Veðurspáin oftast einhver úthafsspá
Ögurballið margfræga við Ísafjarðardjúp verður á laugardag og rabarbaragrautur og rjómi í boði handa svöngum ballgestum að venju. Þessi árlegi mannfagnaður er með hefðbundnu sniði þó að þjónustan í kringum hann hafi aukist á undanförnum árum. Sem dæmi um það má nefna krakkaballið vinsæla á laugardeginum fyrir þau börn sem eru á svæðinu. Einnig að boðið er upp á grillsteik um kvöldið og hádegisgrill á sunnudag.
„Nú þegar er fólk byrjað að tjalda hér í Ögri,“ segir Halldór Halldórsson, einn af Ögursystkinunum. „Veðurspáin segir að einhver væta verði en við þekkjum það á Ögurböllum að svolítil væta hefur ekki haft önnur áhrif á stemminguna en að auka á fjörið í húsinu. Auk þess þýðir ekkert að láta veðurspár hafa of mikil áhrif á sig. Veðurspá fyrir Vestfirði er oftast einhver úthafsspá. Til öryggis leituðum við til okkar einkaveðurfræðings sem segir að þetta verði í fína lagi. Annað hvort verði mjög gott veður eða ekki mjög gott veður. Við ætlum að halda okkur við þennan veðurfræðing áfram,“ segir Halldór.
Böll hafa verið haldin í Samkomuhúsinu í Ögri allt frá 1926. Þannig er haldið í mjög gamla hefð með því að halda árlega þessar dansskemmtanir sem eiga einnig sterka tengingu við rabarbaragraut og rjóma.
„Við hlökkum til að fá gesti okkar á Ögurballið. Þess má geta að afrakstur af þessum böllum fer til viðhalds Samkomuhússins og öll vinna í kringum ballið er sjálfboðavinna,“ segir Halldór Halldórsson.
hlynur@bb.is
„Það kemur Vestfirðingum vissulega ekkert á óvart þó ég tilkynni það hér með að straumleysi er mest á Vestfjörðum, á öllu starfssvæði Landsnets,“ sagði Þórður Guðmundsson forstjóri Landsnets, raforkudreifingar ríkisins, á opnum ársfundi Orkubús Vestfjarða á dögunum. Í erindi sínu fjallaði ...
Meira
„Einhvern veginn þarf þessi regnhlíf sem Menningarmiðstöðin er, innan starfsemi Edinborgarhússins sem heildar, að tryggja rekstur sinn og blómlegt menningarlíf allan ársins hring,“ segir Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir rekstrarstýra Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar á Ísafirði. „Þeir hagsmunir sem á hverjum tíma eru uppi, verða ...
Meira
„Ég veit ekki hvaða lýsingarorð á að nota, þetta er gjörsamlega út úr korti hvernig Vegagerðin bregst við þessari vá á þessum vegi. Eins og að loka klukkan 16 á föstudegi yfir hvítasunnuhelgina um óákveðinn tíma með þeirri skýringu að ekki ...
Meira
Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps lítur þá stöðu sem komin er upp á þjóðvegi 60 í Kjálkafirði alvarlegum augum. Mesti annatími ársins sé að ganga í garð og fyrirtæki eigi mikið undir því komið að samgöngur séu eins og best verður á kosið. Núverandi ...
Meira
„Það er greinilegt að Ísfirðingar er mjög ánægðir með að bíó sé partur af menningarlífinu sem bærinn bíður uppá,“ segir Gróa Böðvarsdóttir hjá Ísafjarðarbíó en nú um helgina hefst sumarvertíðin af fullum krafti. „Þetta eru auðvitað þessar klassísku sumarmyndir sem við ...
Meira
Misræmi er á milli stofnvísitölu rækju og ráðlagðra veiða Hafrannsóknastofnunar undanfarinna ára. Afli á sóknareiningu CPUE, sem er afli í kílóum á hverja klukkustund togtímans, hefur haldist á svipuðu róli á árunum 1974-2011. Á fyrri árum var lagt til að veitt ...
Meira
Úthafsrækjuveiðar verða stöðvaðar 1. júlí en til stendur að endurskoða skipulag rækjuveiða við landið sem hafa verið frjálsar undanfarin ár. Líklegt þykir að gefnar verði út aflaheimildir á skip en ekki eru allir sammála um útfærsluna. Fyrirkomulag undanfarinna ár hefur haft ...
Meira
Háskólasetur Vestfjarða og Háskólinn á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning um meistaranám í haf- og strandveiðastjórnun. Auk áframhaldandi samstarfs um meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun felur samningurinn einnig í sér samstarf stofnanna tveggja um nýtt meistaranám, sjávartengda nýsköpun. Sjávartengd nýsköpun er nýstárleg ...
Meira
Óvenju mikið er um stórar og umfangsmiklar framkvæmdir og fjárfestingar í Ísafjarðarbæ á næstu misserum. Um er að ræða verkefni sem sum hver hlaupa á hundruðum milljóna króna. Landsnet og Orkubú Vestfjarða hyggjast reisa 320m² hús að Skeiði 7 sem á ...
Meira
Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttalögmaður kannar þessa dagana möguleika á kæru vegna útboðs á almenningssamgöngum í Ísafjarðarbæ. Eigandi fjögurra fyrirtækja, Friðfinnur Sigurðsson á Þingeyri, sem lagði inn fjögur tilboð í verkið, hefur leitað til Sigurðar vegna þessa. Öll tilboð fyrirtækja Friðfinns voru ...
Meira