 Jóhann Bæring drullusokkur í dómaragallanum. |
bb.is | 14.07.2012 | 12:22Stærsta flugeldasýning frá upphafi!
Mýrarboltafélag Íslands, sem sér um Evrópumeistaramótið í mýrarbolta á Ísafirði, hefur ákveðið að bjóða landsmönnum öllum á stærstu brennu og flugeldasýningu sem haldin verður á landinu um verslunarmannahelgina. Að sögn Jóhanns Bærings Gunnarssonar, drullusokks félagsins, verður boðið upp á veglega veislu við fjöruna í Suðurtanganum þar sem kveikt verður á risa brennu með tilheyrandi fjörusöng.
Það mun falla í hlut stórsöngvarans og hafnarstjórans, Papamugg eða Guðmundar M. Kristjánssonar að stýra fjöldasöngnum eins og honum einum er lagið. Síðan munu hljómsveitirnar Vintage Caravan og Dikta trylla lýðinn. En til að klára laugardagskvöldið ætla Mýrarboltamenn að bjóða upp á risa flugeldasýningu.
Skráning í mótið gengur vel en þú þegar hafa fjórtán lið skráð sig til leiks. Skráning fer fram á
www.myrarbolti.com.
gunnar@bb.is
Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur á Ísafirði og fyrrverandi alþingismaður er meðal umsækjenda um stöðu forseta hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Spurð frétta um ráðningu í stöðuna segir hún: „Það eru komin drög að hæfnisdómi en umsækjendum er gefinn kostur á að ...
Meira
Tæplega 20.000 manns, og hefur farið ört fjölgandi, hafa skrifað undir yfirlýsinguna „Við undirrituð hvetjum Alþingi til að samþykkja ekki frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum 74 frá 26. júní 2012 þar sem skilgreind eru þau gjöld sem útgerðinni ber að ...
Meira
Í dag eru 98 ár síðan konur yfir fertugu öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla. Í tilefni dagsins er boðið upp á fjölbreytta dagskrá víða um landið. Að sögn Hrafnhildar Hrannar Óðinsdóttur, málpípu Femínistafélags Vestfjarða, ætlar félagið í tilefni dagsins ...
Meira
Í kjölfar vinnustofudvalar Ragnars Kjartanssonar myndlistarmanns á Galtarvita verður haldinn Jónsmessufögnuður á miðnætti aðfaranótt 24. júní. Bátsferðir verða í boði frá Suðureyri 23. júní kl. 11 og 17 og hægt verður að tjalda á staðnum eða gista í svefnpokaplássi. Allt frá ...
Meira
„Síðasta vika var söguleg fyrir okkur, en þá komu rútur frá skemmtiferðaskipunum í fyrsta skipti til Súðavíkur. Það er í fyrsta sinn sem við tökum á móti ferðamönnum í þessum fjölda. Melrakkasetrið verkur mikla athygli, við eigum nóg af náttúruperlum, það ...
Meira
Að sögn sr. Magnúsar Erlingssonar sóknarprests kemur töluvert af ferðamönnum í Ísafjarðarkirkju til að nota salernisaðstöðuna sem þar er. Fólki sé auðvitað alltaf velkomið til að nýta aðstöðuna þar. Bæjaryfirvöld þurfi hins vegar að hugsa málið til enda þegar kemur að ...
Meira
Tónlistarhátíðin Við Djúpið hefst á morgun, miðvikudag, á því að Örn Elías Guðmundsson eða Mugison eins og hann er betur þekktur fleytir hátíðinni af stað með hádegistónleikum kl. 12.10 í Grunnskóla Ísafjarðar. Opnunarhátíðin fer svo fram kl. 20 í Hömrum, menningarhúsi ...
Meira
Afhjúpaður var í eynni Vigur á Ísafjarðardjúpi á föstudag minnisvarði um Sigurð Bjarnason frá Vigur, en hann lést í janúar á síðasta ári, 96 ára að aldri. Sigurður lét eftir sig eiginkonu, Ólöfu Pálsdóttur myndhöggvara, og tvö börn, Hildi Helgu og ...
Meira
Mikið var um dýrðir á Ísafirði í gær, þjóðhátíðardag Íslendinga, og margir mættu prúðbúnir í bæinn eins og sést á meðfylgjandi myndum. Hátíðarhöldin hófust með skrúðgöngu frá Silfurtorgi þar sem lögreglan og skátarnir fóru í fararbroddi að Eyrartúni þar sem skemmtidagskráin ...
Meira
Eiríkur Örn Norðdahl er Ísfirðingum að góðu kunnur enda fæddur og uppalinn í bænum. Hann hefur getið sér gott orð sem einn af framsæknustu rithöfundum þjóðarinnar og jafnframt er hann handhafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár fyrir skáldsöguna Illsku. Hún fór sigurför ...
Meira