Frétt

Látrabjarg.
Látrabjarg.

bb.is | 10.07.2012 | 09:16Látrabjarg vinsæll viðkomustaður

Fjöldi ferðamanna sem kemur við í Látrabjargi hefur vaxið ár frá ári. Samkvæmt umferðartalningu Vegagerðarinnar síðastliðið sumar, fóru að meðaltali 141 bíll á dag um veg 612 á Látrabjargi, á tímabilinu 1. júní til 30. september. Það gerir um 12.700 bílar á fjórum mánuðum. Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að með fjölgun ferðamanna hefur álag á náttúru svæðisins aukist og sumstaðar látið á sjá. Stofnunin hefur gert samkomulag við landeigendur við Látrabjarg um að sinna landvörslu á svæðinu yfir sumartímann. Í kjölfarið var hafist handa við uppbyggingu á göngustígum á bjarginu þar sem álagið er mest.

Sjálfboðaliðar á vegum Umhverfisstofnunnar voru fengnir í verkefnið og lögð var áhersla á að valda sem minnstu raski, að nota efnivið af svæðinu og láta göngustíginn falla vel að landslaginu. „Það reyndi mikið á krafta sjálfboðaliðanna að bera fjölda steina yfir 100kg að þyngd um 250 metra vegalengd til að hanna steinþrep. En árangur erfiðisins og vönduð vinnubrögð skiluðu sér,“ segir á vef stofnunarinnar og þar er minnt á að sjálfboðaliðar á vegum Umhverfisstofnunnar starfa á sumrin um land allt og vinna þar þarft og ómetanlegt starf.

thelma@bb.is

bb.is | 19.05.13 | 10:43 Iðja fyrir fólk sem hefur lítið fyrir stafni

Mynd með frétt Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps opnar í haust svokallaða Iðju fyrir fólk sem hefur lítið fyrir stafni vegna atvinnuleysis, sjúkdóma eða fötlunar. „Fyrirmyndin er í raun Vesturafl á Ísafirði og Hver á Akranesi. Ég fór og kynnti mér starfsemi þessara staða og ...
Meira

bb.is | 19.05.13 | 09:20Viðburðaríkt sumar að Hnjóti

Mynd með frétt„Það hefur gengið mjög vel að skipuleggja afmælisárið. Það er spenningur hér yfir dagskránni og því hvernig hún muni fara í gesti, jafnt heimafólk sem ferðamenn,“ segir Heiðrún Konráðsdóttir, forstöðukona Minjasafns Egils Ólafssonar að Hnjóti í Örlygshöfn. Viðburðir sumarsins er settir ...
Meira

bb.is | 18.05.13 | 10:43Kræklingarækt og fiskeldi fara vel saman

Mynd með frétt„Það er mjög margt sem mælir með því að fiskeldi og kræklingarækt fari vel saman, meðal annars vegna þess að umhverfisáhrif sjókvíaeldis geta hugsanlega minnkað ef kræklingarækt er byggð upp samhliða uppbyggingu á sjókvíaeldi,“ segir Shiran Þórisson hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða. Verkefni ...
Meira

bb.is | 18.05.13 | 09:17Undirbúningurinn kominn á fullt

Mynd með frétt„Undirbúningurinn er kominn á fullt. Það verður stærra mót í ár, fleiri vellir, fleiri lið, fleira fólk og meira gaman. Við erum að vinna í að bæta umgjörðina, fá betri aðstöðu fyrir gesti og keppendur,“ segir Jóhann Bæring Gunnarsson, drullusokkur Evrópumeistaramótsins ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 16:50Kaupir af Byggingarfélagi eldri borgara

Mynd með fréttSamningur um kaup Bolungarvíkurkaupstaðar á fyrstu hæð Aðalstrætis 20 ásamt hluta kjallara af Byggingarfélagi eldri borgara var undirritaður og handsalaður í gær. Hér er um að ræða stóran áfanga í nýja hjúkrunarheimilinu í Bolungarvík. Upphaflega var áformað að á fyrstu hæð ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 14:48Ríkið tekur fjármuni frá sjávarbyggðunum

Mynd með frétt„Augljóslega er verið að taka mikla fjármuni úr sjávarbyggðunum með sérstakri skattlagningu á eina atvinnugrein, sjávarútveginn. Ekkert af sérstaka veiðigjaldinu rennur hins vegar til sveitarfélaganna,“ segir Elías Jónatansson, bæjarstjóri í Bolungarvík, aðspurður hvort sveitarfélög þar sem útgerð er stunduð njóti einhvers ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 13:02Gjaldtaka styður uppbyggingu og öryggi

Mynd með frétt„Ég er fylgjandi því að tekið verði einhvers konar gjald af ferðafólki sem heimsækir ferðamannastaði til að standa undir uppbyggingu þar. Hins vegar er ég enn hlynntari því að unnið verði miklu markvissara að því að dreifa ferðamönnum víðar um landið. ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 10:55Styttist í komu fyrstu skipanna

Mynd með fréttFyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kemur til Ísafjarðar 6. júní nk., og með því 3.300 farþegar. Að sögn Guðmundar M. Kristjánssonar, hafnarstjóra Ísafjarðarhafna, er um nokkra aukningu að ræða frá fyrra sumri. Ekki er gert ráð fyrir aukningu á skipakomum á næsta ári ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 09:14Ósanngjarnt að taka eina grein út úr

Mynd með fréttSkoðanir varðandi hugsanlegt afnám hins sérstaka veiðigjalds eru mjög skiptar eins og m.a. hefur komið fram hér á vefnum, bæði hjá Óðni Gestssyni hjá Íslandssögu hf. á Suðureyri og Ólínu Þorvarðardóttur fráfarandi alþingismanni. Sigurður Viggósson framkvæmdastjóri Odda hf. á Patreksfirði er ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 07:42Ný námsleið við Háskólasetrið

Mynd með fréttSamningur um nýja námsleið við Háskólasetur Vestfjarða verður undirritaður á aðalfundi Háskólasetursins sem fram fer á föstudag. Hin nýja námsleið nefnist „Sjávartengd nýsköpun“ og er samstarfsverkefni Háskólasetursins og Háskólans á Akureyri. Að sögn Peter Weiss, forstöðumanns Háskólasetursins, hefur lengi verið unnið ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi