Frétt

Dyttað hefur verið að göngustíg við fossinn Dynjanda í Arnarfirði.
Dyttað hefur verið að göngustíg við fossinn Dynjanda í Arnarfirði.

bb.is | 10.07.2012 | 07:40Sumarið komið á sunnanverðum Vestfjörðum

Miklar framkvæmdir hafa verið í friðlandinu á sunnanverðum Vestfjörðum og nærliggjandi svæðum síðan landvörður tók þar til starfa um miðjan júní. Sjálfboðaliðar Umhverfisstofnunar mættu á sama tíma og landvörður og var hafist handa við lagfæringu og viðhald göngustígs við fossinn Dynjanda. Sjálfboðaliðarnir eru um þessar mundir að vinna í Surtarbrandsgili en þar stendur mikið til þessa dagana. Setja á upp upplýsingaskilti og sýningakassa bæði inni í gilinu og utan við það, ásamt því sem unnið er í stígagerð inni í gilinu sjálfu.

Á meðan að sjálfboðaliðar hafa unnið hörðum höndum við náttúruvættin tvö, hefur landvörður eytt síðustu vikum í viðhald og upplýsingagjöf í friðlandinu sjálfu. Mikið er um gamla slóða og utanvega akstursför á svæðinu og tími farið í að lagfæra og skipta út staurum og steinum sem loka slíkum slóðum. Skilti og áningaborð eru pússuð og máluð og eru tilbúin til notkunar, utanvegaakstursför hafa verið rökuð burt og loksins er byrjað að rigna eftir ótrúlega blíðu og yfirgengilega þurrka síðustu vikna. Gróðurinn ætti því að taka kipp og vonandi bláberin með. Líklegt er að mýið spretti upp að sama skapi.

Á Vatnsdalsvatni er fjölskrúðugt fuglalíf og í síðustu ferð sinni meðfram vatninu kom landvörður auga á kríur, himbrima, lómapar, straumendur, lóur, spóa, álftir og meira að segja toppöndsstegg.

„Ferðamannafarfuglarnir eru líka mættir og fólk farið að tjalda allt frá litlum einstaklingstjöldum upp í glæsileg þriggja herbergja fellihýsi á tjaldstæðunum við Hótel Flókalund. Sumarið er því svo sannarlega komið á sunnanverðum Vestfjörðum,“ segir í tilkynningu.

thelma@bb.is

bb.is | 19.06.13 | 10:54 Jónsmessufagnaður á Galtarvita

Mynd með frétt Í kjölfar vinnustofudvalar Ragnars Kjartanssonar myndlistarmanns á Galtarvita verður haldinn Jónsmessufögnuður á miðnætti aðfaranótt 24. júní. Bátsferðir verða í boði frá Suðureyri 23. júní kl. 11 og 17 og hægt verður að tjalda á staðnum eða gista í svefnpokaplássi. Allt frá ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 09:15Súðavík sækir í sig veðrið

Mynd með frétt„Síðasta vika var söguleg fyrir okkur, en þá komu rútur frá skemmtiferðaskipunum í fyrsta skipti til Súðavíkur. Það er í fyrsta sinn sem við tökum á móti ferðamönnum í þessum fjölda. Melrakkasetrið verkur mikla athygli, við eigum nóg af náttúruperlum, það ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 07:45Teflt við páfann í Ísafjarðarkirkju

Mynd með fréttAð sögn sr. Magnúsar Erlingssonar sóknarprests kemur töluvert af ferðamönnum í Ísafjarðarkirkju til að nota salernisaðstöðuna sem þar er. Fólki sé auðvitað alltaf velkomið til að nýta aðstöðuna þar. Bæjaryfirvöld þurfi hins vegar að hugsa málið til enda þegar kemur að ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 15:58Mugison með tónleika og leitin mikla að píanói

Mynd með fréttTónlistarhátíðin Við Djúpið hefst á morgun, miðvikudag, á því að Örn Elías Guðmundsson eða Mugison eins og hann er betur þekktur fleytir hátíðinni af stað með hádegistónleikum kl. 12.10 í Grunnskóla Ísafjarðar. Opnunarhátíðin fer svo fram kl. 20 í Hömrum, menningarhúsi ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 14:48Minnisvarði um Sigurð frá Vigur

Mynd með fréttAfhjúpaður var í eynni Vigur á Ísafjarðardjúpi á föstudag minnisvarði um Sigurð Bjarnason frá Vigur, en hann lést í janúar á síðasta ári, 96 ára að aldri. Sigurður lét eftir sig eiginkonu, Ólöfu Pálsdóttur myndhöggvara, og tvö börn, Hildi Helgu og ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 13:03Mikið um dýrðir á þjóðhátíðardaginn

Mynd með fréttMikið var um dýrðir á Ísafirði í gær, þjóðhátíðardag Íslendinga, og margir mættu prúðbúnir í bæinn eins og sést á meðfylgjandi myndum. Hátíðarhöldin hófust með skrúðgöngu frá Silfurtorgi þar sem lögreglan og skátarnir fóru í fararbroddi að Eyrartúni þar sem skemmtidagskráin ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 10:54Helvítis basl að verða rithöfundur

Mynd með fréttEiríkur Örn Norðdahl er Ísfirðingum að góðu kunnur enda fæddur og uppalinn í bænum. Hann hefur getið sér gott orð sem einn af framsæknustu rithöfundum þjóðarinnar og jafnframt er hann handhafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár fyrir skáldsöguna Illsku. Hún fór sigurför ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 09:13Miklar framkvæmdir á Vestfjarðavegi við Breiðafjörð

Mynd með frétt„Við erum að vinna í fyllingum út í sjó og svo erum við búnir að vera í Kjálkafirði og erum þar að vinna við að steypa sökkla undir brú sem kemur þar og verður 116 metra löng. Í Mjóafirði erum við ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 07:41Tónlistarhátíðin Við Djúpið að hefjast

Mynd með fréttTónlistarhátíðin Við Djúpið fer fram á Ísafirði í ellefta skipti í sumar og byrjar á morgun. Hátíðin er venjulega haldin dagana í kringum sumarsólstöður þegar sólin er hvað hæst á lofti. Frá upphafi hefur námskeiðahald verið meginstef tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið. Framúrskarandi ...
Meira

bb.is | 17.06.13 | 10:19Gleðilega hátíð!

Mynd með fréttBæjarins besta og bb.is óska lesendum sínum gleðilegrar hátíðar, en í dag fagna Íslendingar stofnun lýðveldisins árið 1944. Í dag eru einnig 202 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar, helsta leiðtoga Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni, en hann fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi