Frétt

Frá framkvæmdum við Mávagarð á síðasta ári.
Frá framkvæmdum við Mávagarð á síðasta ári.

bb.is | 03.07.2012 | 14:56Flutningur olíubirgðastöðvar undirbúinn

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur falið bæjarritara að ganga frá samningi vegna flutnings olíubirgðastöðvar Olíudreifingar ehf., við Mjósund og Suðurgötu á Ísafirði, yfir á lóð F á Mávagarði. Verður samkomulag milli Olíudreifingar ehf. og Ísafjarðarbæjar lagt fyrir næsta fund bæjarráðs til staðfestingar. Olíudreifing hafði áður sótt um lóðina, samkvæmt gildandi deiliskipulagi, með það að markmiði að reisa þar olíubirgðastöð til að þjónusta Vestfirði með fljótandi eldsneyti. Áður hafði drögum að samkomulaginu ásamt áætlun um meðhöndlun jarðvegs á lóðinni verið lagt fyrir bæjaryfirvöld.

Í minnisblaði sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs vegna málsins kemur fram að gert er ráð fyrir að lóðin verði afhent í byggingarhæfu ástandi. Kostnaður við að gera lóðina byggingarhæfa gæti verið á bilinu 2-4 milljónir króna og kostnaður við jarðvegskönnun um 1,5 milljónir króna. Bæjarráð veitti heimild til að færa fjármagn, sem því nemur er að framan greinir, af framkvæmdafé við byggingu hjúkrunarheimilisins Eyri á Ísafirði, yfir á framkvæmdir við Mávagarð eins og óskað var eftir. „Sjáanlegt er að allt fjármagn er áætlað var til framkvæmda við hjúkrunarheimilið muni ekki verða nýtt á þessu ári,“ segir í minnisblaði sviðsstjóra.

Olíubirgðastöðin er sem stendur við Suðurgötu en sú staðsetning hefur lengi verið nokkuð umdeilt. Vinnuhópur um framtíðarstað birgðastöðvarinnar lauk störfum árið 2007 eftir að skýrsla, unnin af VST, hafði verið kláruð. Í henni komu fram þeir kostir sem hópurinn taldi fyrir því að birgðastöðin yrði færð á nýtt svæði á Mávagarði. Í ágúst 2010 hófust framkvæmdir við landfyllingu og niðursetningu stálþils til að flutningur birgðastöðvarinnar gæti átt sér stað.

thelma@bb.is

bb.is | 22.05.13 | 16:50 Sjófarendur án FM-sendinga

Mynd með frétt Í kjölfar þess að mastur Ríkisútvarpsins á Þverfjalli, sem er í 750 metra hæð milli Skutulsfjarðar og Önundarfjarðar, lagðist á hliðina í fárviðri sem gekk yfir Vestfirði í lok janúar, var hafist handa við að tryggja FM-sendingar á þeim stöðum sem ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 14:48Fylgst með skriðuhættu

Mynd með fréttVegagerðin og verktakinn sem sá um vinnu við veginn um Kjálkafjörð, þegar stór skriða féll á veginn 23. apríl og lokaði honum, munu fylgjast með skriðuhættu á svæðinu og því getur komið til fyrirvararlítilla lokana ef minnsta hætta er á ferðum, ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 13:02Heimilisköttur ungrar stúlku fannst skotinn í fjörunni

Mynd með fréttHeimilisköttur ungrar stúlku sem hafði verið týndur í þrjá daga, fannst dauður á hafnarsvæðinu í Bolungarvík í gær. Kötturinn hafði verið skotinn. „Þetta var lítil snjóhvít læða með svörtum blett. Krakkar úr skólanum sáu köttinn í fjörunni og létu vita. Við ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 10:57Heiðruðu Villa Valla með söng

Mynd með frétt„Það var annað tímabil á ferli Æfingar þegar við vorum komnir í pásu en héldum áfram. Þá með Söru Vilbergs (eldri) og gengum undir nafninu „Systir Sara og Asnarnir“, segir Árni Benediktsson gítarleikari Æfingar en hljómsveitin kom saman á rakarastofu Vilbergs ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 09:16Innheimtu ekki úthlutaða styrki

Mynd með fréttEkki hafa öll framboð til bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar innheimt úthlutaða styrki undanfarin þrjú ár þrátt fyrir að öll framboðin hafi fengið bréf um árlega úthlutun. Málið var rætt á fundi bæjarráðs sem haldinn var í gær. B-listi Framsóknarflokks hefur ekki innheimt úthlutaða ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 07:44Ísafjarðarbær styrkir menningarstarfsemi í Edinborgarhúsinu

Mynd með fréttRekstur Edinborgarhússins á Ísafirði hefur verið erfiður eins og greint hefur verið frá hér í blaðinu og er þá sérstaklega átt við menningarhluta starfseminnar, Menningarmiðstöðina Edinborg, sem glímir við verulegan fjárskort sem hamlar þróun og eflingu starfseminnar að sögn Ólafar Dómhildar ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 16:49Uppbygging á Torfnesi á viðræðustigi

Mynd með frétt„Framkvæmdirnar á Torfnesi hljóða í mesta lagi upp á sjö milljónir króna á þessu ári. Það er því af og frá að Ísafjarðarbær sé að fara veita 64 milljónum króna í framkvæmdir við Torfnesvöll, eins og einhverjir virðast hafa haldið,“ segir ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 14:47„Þarf að vera almenn sátt um ímynd Vestfjarða“

Mynd með frétt„Þegar samfélagið á þátt í stefnumótun í ferðaþjónustunni þá smitar það út frá sér og leiðir af sér félagsleg mikilvæg lífsgæði fyrir okkur, fólkið sjálft,“ segir Ásbjörn Björgvinsson formaður Ferðamálasamtaka Íslands. Hann segir aukið þjónustustig við ferðafólk ekki aðeins leiða ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 13:01Verður erfitt en skemmtilegt

Mynd með frétt„Tilhlökkunin er miklu meiri en kvíðinn,“ segir Óskar Jakobsson, sem eftir rúma viku leggur af stað hlaupandi frá Reykjavík til Ísafjarðar. „Ég er búinn að æfa mjög stíft undanfarnar vikur og hleyp þá langt en ekki hratt til að geta haldið ...
Meira

bb.is | 21.05.13 | 10:56Rekstur Edinborgarhússins erfiður

Mynd með frétt„Það er alveg ljós að það er ekkert einsdæmi að rekstur Edinborgarhússins sé í járnum, þar sem rekstur menningarstofnana gengur mjög brösuglega um þessar mundir á landsvísu. Það er einna helst á Austurlandi þar sem eitthvað sést til lands. Þar voru ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi