bb.is | 25.06.2012 | 10:53Gísli Halldór verður forseti bæjarstjórnar
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur verið kjörinn forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar. Tillögur komu fram frá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks um að Gísli yrði forseti bæjarstjórnar, en fleiri tillögur komu ekki fram og var Gísli kosinn með einróma samþykki. Meirihlutaflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, gerðu með sér samning eftir síðustu bæjarstjórnarkosningar að flokkarnir myndu skipta forsetahlutverkinu með sér. Gísli tekur við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, Framsóknarflokki, en Gísli var áður forseti bæjarstjórnar árið 2010.Óskað var eftir tillögum um fyrsta og annan varaforseta bæjarstjórnar, en Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur tilnefndu Albertínu sem fyrsta varaforseta. Tillaga kom frá minnihluta Í-lista um Jónu Benediktsdóttur, Í-listanum, sem annar varaforseti. Fleiri tillögur komu ekki fram og voru tillögurnar samþykktar einróma.
Þrír aðalmenn og þrír varafulltrúar í bæjarráði Ísafjarðarbæjar voru einnig kosnir. Tillaga kom frá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks um Eirík Finn Greipsson og Albertínu sem aðalmenn í bæjarráð og Gísla Halldór og Marzellíus Sveinbjörnsson sem varamenn. Tillaga kom fram frá minnihluta Í-lista um Örnu Láru Jónsdóttur sem aðalmann í bæjarráð og Kristján Andra Guðjónsson sem varamann. Fleiri tillögur komu ekki fram og voru þær samþykktar einróma.
Kristín Hálfdánardóttir og Kristján Andri Guðjónsson verða skrifarar bæjarstjórnar og Guðfinna Hreiðarsdóttir og Arna Lára verða varamenn.
Kosningar í embætti eru á árs fresti samkvæmt sveitarstjórnarlögum og bæjarmálasamþykkt, áður en bæjarstjórn fer í sumarfrí. Kosið var síðast í sveitarstjórnarkosningum árið 2010 og næstu kosningar fara fram árið 2014. Bæjarráði Ísafjarðarbæjar er falið vald bæjarstjórnar á sumarleyfistíma bæjarstjórnar, en næsti fundur bæjarstjórnar verður settur 6. september næstkomandi.
gudmundur@bb.is
bb.is | 23.05.13 | 09:17 Helstu áhrif framkvæmda við Dýrafjarðargöng sjónræns eðlis
Meira
bb.is | 23.05.13 | 07:45Ísafjörður árið 1893
Meira
bb.is | 22.05.13 | 16:50Sjófarendur án FM-sendinga
Meira
bb.is | 22.05.13 | 14:48Fylgst með skriðuhættu
Meira
bb.is | 22.05.13 | 13:02Heimilisköttur ungrar stúlku fannst skotinn í fjörunni
Meira
bb.is | 22.05.13 | 10:57Heiðruðu Villa Valla með söng
Meira
bb.is | 22.05.13 | 09:16Innheimtu ekki úthlutaða styrki
Meira
bb.is | 22.05.13 | 07:44Ísafjarðarbær styrkir menningarstarfsemi í Edinborgarhúsinu
Meira
bb.is | 21.05.13 | 16:49Uppbygging á Torfnesi á viðræðustigi
Meira
bb.is | 21.05.13 | 14:47„Þarf að vera almenn sátt um ímynd Vestfjarða“
Meira