bb.is | 11.06.2012 | 09:12Helmingi byggðakvóta skal úthluta jafnt til fiskiskipa
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar gagnrýnir harðlega þann tíma, sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur tekið sér til að afgreiða tillögur að breytingum á úthlutun byggðakvóta byggðarlaga í Ísafjarðarbæ. Tillögurnar voru samþykktar á bæjarstjórnarfundi 19. janúar og kynntar í bréfi til ráðuneytisins 20. janúar en svar frá ráðuneytinu barst ekki fyrr en í bréfi dagsettu 20. maí. „Þessi dráttur á afgreiðslu málsins takmarkar möguleika útgerða, til að uppfylla skilyrði um byggðakvóta, þar sem langt er liðið á fiskveiðiárið og tími til veiða hefur verið verulega skertur,“ segir í fundarbókun.Á bæjarstjórnarfundi fyrir helgi voru tillögur Ísafjarðarbæjar að breytingum á reglugerð nr. 1182 frá 21. desember um úthlutun byggðakvóta samþykktar samhljóða en þær eru svohljóðandi:
„Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta byggðarlaga í Ísafjarðarbæ með eftirfarandi viðauka/breytingum:
a) A-liður 1. gr. breytist og verður: Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, eða frístundaveiðileyfi skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. sömu laga, við lok umsóknarfrests.
b) Ákvæði 1. málsl. c-liðar 1. gr. breytist og verður svohljóðandi: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 1. desember 2011.
c) Við 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsl. sem verður 1. málsl., svohjóðandi: Það aflamark sem eftir er af byggðakvóta Ísafjarðarbæjar frá fiskveiðiárinu 2010/2011, 139,8 þorskígildistonn skiptist milli fiskiskipa á Flateyri miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2009 til 31. ágúst 2010.
d) Ákvæði 1. málsl. sem verður 2. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags skal skiptast þannig að 50% úthlutaðs byggðakvóta skal úthluta jafnt til einstakra fiskiskipa sem uppfylla að öðru leiti skilyrði 1.gr og reglur, þó að hámarki fimm tonn á hvert skip. Að öðru leyti fari úthlutun fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011.
50% úthlutaðs byggðakvóta sbr. d lið þessara tillagna skal úthluta jafnt til einstakra fiskiskipa sem uppfylla að öðru skilyrði 1.gr. sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir þó aldrei meir en 5 tonn per skip.“
thelma@bb.is
bb.is | 24.05.13 | 07:40 Samstarfssamningur undirritaður um sjávartengda nýsköpun
Meira
bb.is | 23.05.13 | 16:49Milljarða framkvæmdir í Ísafjarðarbæ
Meira
bb.is | 23.05.13 | 14:47Kæruferli vegna útboðs?
Meira
bb.is | 23.05.13 | 13:01Aðalfundi Orkubús Vestfjarða frestað vegna nýrrar ríkisstjórnar
Meira
bb.is | 23.05.13 | 10:58Mun aukin áhersla á verknám skila tilætluðum árangri?
Meira
bb.is | 23.05.13 | 09:17Helstu áhrif framkvæmda við Dýrafjarðargöng sjónræns eðlis
Meira
bb.is | 23.05.13 | 07:45Ísafjörður árið 1893
Meira
bb.is | 22.05.13 | 16:50Sjófarendur án FM-sendinga
Meira
bb.is | 22.05.13 | 14:48Fylgst með skriðuhættu
Meira
bb.is | 22.05.13 | 13:02Heimilisköttur ungrar stúlku fannst skotinn í fjörunni
Meira