 Magdalena Sigurðardóttir. |
bb.is | 12.06.2012 | 10:03Hýsa sögu kvennamenningar og lista
Kvenfélaginu Ósk á Ísafirði var á dögunum úthlutað 500.000 kr. styrk frá Menningarráði Vestfjarða, fyrir fyrirhugað safn sem hýsa mun sögu kvennamenningar og lista í bænum. Magdalena Sigurðardóttir, formaður kvenfélagsins, segir að safnið muni þjóna þeim tilgangi að segja sögu vestfirskra kvenna og sögu Húsmæðraskólans Óskar á Ísafirði. „Konur stofnuðu þennan skóla og þær hafa alltaf átt mikla sögu hér í bæ. Hugmyndin að verkefninu er sú að við setjum upp nokkurs konar lifandi safn, þar sem hægt verður að fara á hin ýmsu námskeið í handverki , vefnaði og jafnvel matreiðslu,“ segir Magdalena. „Saga kvenna á Vestfjörðum yrði þannig lituð og henni gefið líf.“
Sá böggull fylgir þó skammrifi að Kvenfélaginu Ósk hefur ekki verið úthlutað aðstöðu í bænum til að hýsa starfsemina, en á sínum tíma skuldbatt Ísafjarðarbær sig til að útvega húsnæði fyrir félagið, þegar Húsmæðraskólanum var breytt í Tónlistarskóla Ísafjarðar. Magdalena segist því ekki geta svarað því hvenær safnið verður að veruleika. „Það ræðst á því hvenær bærinn mun skaffa okkur húsnæði,“ segir hún.
gudmundur@bb.is
Bæjarins besta og bb.is óska lesendum sínum gleðilegrar hátíðar, en í dag fagna Íslendingar stofnun lýðveldisins árið 1944. Í dag eru einnig 202 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar, helsta leiðtoga Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni, en hann fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. ...
Meira
Hátíðardagskráin í dag, 17. júní, að Hrafnseyri við Arnarfjörð hefst kl. 12.30 með hátíðarguðsþjónustu í Hrafnseyrarkapellu þar sem Arnaldur Finnsson guðfræðingur predikar en séra Hildur Inga Rúnarsdóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari. Kirkjukór Þingeyrarkirkju syngur. Að guðsþjónustu lokinni verður boðið upp á ...
Meira
Jón Kr. Ólafsson á Bíldudal söng inn á sína fyrstu plötu árið 1969. Á sínum tíma söng hann mikið með Ingibjörgu Guðmundsdóttur, en hún er einna þekktust í samhenginu BG og Ingibjörg. Hún gaf út sína fyrstu plötu árið 1970 og ...
Meira
„Þetta úrræði hefur ekki verið notað af okkur þar sem það hefur bara verið til boða fyrir sunnan. Ástæða þess að það er lagt niður er minnkandi þörf. Ég vil taka fram að börn sem búa við slíkar aðstæður hér munu ...
Meira
Ester Rut Unnsteinsdóttir er fædd og uppalin í Garðahreppi, sem kallast í dag Garðabær. Hún er sjöunda í röð 10 systkina og ætlaði að verða rosalega margt þegar hún yrði stór. Í dag er hún framkvæmdastjóri Melrakkasetursins í Súðavík þar sem ...
Meira
„Þessi niðurstaða um umsóknina um fiskeldi í Djúpinu er mjög mikil vonbrigði fyrir okkur. Í fyrsta lagi vegna þess að nefndin hafði þrjá mánuði til að úrskurða um málið en er að gefa úrskurðinn núna, einu og hálfu ári síðar. Þetta ...
Meira
„Ég hafði safnað uppskriftabókum í mörg ár en notaði þær samt aldrei, sem mér fannst svolítið sorglegt og ákvað því að taka mig á og nota bækurnar. Þetta átti að vera svona einu sinni í mánuði en svo þróaðist þetta út ...
Meira
Í kjölfar fréttar í morgun um laun unglinga í vinnuskólanum á Ísafirði barst BB ábending um að laun bolvískra unglinga séu jafnvel hærri en hjá kollegum þeirra á Ísafirði. Þar eru unglingar sem fæddir eru á árinu 1999 með 717 krónur ...
Meira
Sólstafir Vestfjarða, sjálfshjálparsamtök þolenda kynferðisbrota, hafa fengið styrk frá velferðarráðuneytinu að upphæð tæplega 1,7 milljóna króna. Styrkurinn mun vera hluti af aðgerðaáætlun fyrrverandi ríkisstjórnar vegna kynferðisofbeldis gegn börnum, sem samþykkt var í byrjun apríl. Með innspýtingu um 190 milljóna króna inn ...
Meira
„Ekki verður farið í neinar viðgerðir á Þingeyrarflugvelli þar sem ekki eru fjárveitingar til þess. Flugbrautin verður völtuð og völlurinn verður notaður það sem eftir er af sumrinu,“ segir Friðþór Eydal, talsmaður Isavia. Flugbrautin skemmdist vegna frostlyftingar í byrjun mars og ...
Meira