bb.is | 08.06.2012 | 13:01Útgerðarmenn vilja lækka laun sjómanna
„LÍÚ rekur fleyg milli sjómanna og stéttarfélaga þeirra og fá sjómenn til stuðnings við útvegsmenn í baráttunni við að lækka skiptakjör til sjómanna,“ segir Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða, í nýrri grein á vefsvæði félagsins. Í greininni segir Finnbogi að forsvarsmönnum stéttarfélaga hafi ekki verið boðið á fundi útvegsmanna með sjómönnum og starfsfólki. Finnbogi telur að vinnubrögð útvegsmanna varði við lög, en 4. grein laga um stéttarfélög og vinnudeilur segir aðalvinnurekendum sé óheimilt að hafa áhrif á stjórnmálaskoðanir verkamanna sinna, t.d. með hótunum um uppsögn eða neitun á réttmætum greiðslum.Finnbogi telur að fulltrúum stéttarfélaga hafi verið meinaður aðgang að fundum LÍÚ með útgerðum sínum og sjómönnum. Það sé vegna þess að fulltrúar stéttarfélaga láta sig atvinnuöryggi fólksins varða. „Við núverandi aðstæður á vinnumarkaði hafa starfsmenn engan annan valkost en að taka undir með sínum atvinnurekanda af ótta við hugsanlegar afleiðingar. Starfsfólk mun verða fyrir fjárhagslegum skaða, fiskvinnslum verður lokað um lengri eða skemmri tíma vegna heimatilbúins hráefnisskorts, bónusar verða ekki greiddir í vinnslustöðvunum, sumarfrí sjómanna raskast,“ segir Finnbogi, og bætir því að starfsfólkið beri skaðann af þessu fyrirkomulagi. „ Þessari fullyrðingu til stuðnings var starfsfólki HG í Hnífsdal tilkynnt á lokuðum fundi fyrr í vikunni, þ.e. að fyrirtækið myndi ekki greiða starfsfólki bónusa á meðan vinnslustöðvun varir,“ segir Finnbogi.
Sjómenn eru hvattir til þess að vera á varðbergi. Finnbogi telur að helstu kröfur LÍÚ frá upphafi kjaraviðræðna, og helstu kröfur útgerðarmanna, hafi verið að lækka laun sjómanna og þannig fá þá til að taka frekari þátt í kostnaði útgerðarinnar. „Launalækkunum sjómanna ætla útvegsmenn að ná fram með breytingum á hlutaskiptakerfinu þannig að minna komi til skiptanna þegar hlutur skipverja í aflaverðmæti er reiknaður. Þessu hafa samtök sjómanna hafnað með öllu. Það er ömurlegt hvernig hræðsluáróður útvegsmanna um umtalsverða launaskerðingu til sjómanna verði veiðigjaldið að veruleika er notaður gegn sjómönnum,“ segir Finnbogi.
gudmundur@bb.is
bb.is | 19.06.13 | 16:48 Á góða möguleika en umsækjendur allir hæfir
Meira
bb.is | 19.06.13 | 14:46Segir almenningi greinilega nóg boðið
Meira
bb.is | 19.06.13 | 13:04Til hamingju með daginn, konur!
Meira
bb.is | 19.06.13 | 10:54Jónsmessufagnaður á Galtarvita
Meira
bb.is | 19.06.13 | 09:15Súðavík sækir í sig veðrið
Meira
bb.is | 19.06.13 | 07:45Teflt við páfann í Ísafjarðarkirkju
Meira
bb.is | 18.06.13 | 15:58Mugison með tónleika og leitin mikla að píanói
Meira
bb.is | 18.06.13 | 14:48Minnisvarði um Sigurð frá Vigur
Meira
bb.is | 18.06.13 | 13:03Mikið um dýrðir á þjóðhátíðardaginn
Meira
bb.is | 18.06.13 | 10:54Helvítis basl að verða rithöfundur
Meira