Frétt

Öfugur fáni sem flaggað var í hálfa í Súðavík þegar tilkynnt var um lokunina.
Öfugur fáni sem flaggað var í hálfa í Súðavík þegar tilkynnt var um lokunina.

bb.is | 02.06.2012 | 10:38„Aðför að þjónustu við íbúa og atvinnulíf“

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga mótmælir ákvörðun Landsbanka hf um lokun útibúa á Vestfjörðum sem hún telur ganga þvert á vinnu og stefnu stjórnvalda um að auka fjölbreytni starfa og þjónustustigi í dreifðum byggðum. „Samkvæmt upplýsingum Landsbanka verða alls lögð niður 6,5 stöðugildi við þessa aðgerð, ekki eru gefnar upplýsingar frá Landsbanka um heildarsparnað á Vestfjörðum en samkvæmt frétt bankans er áætluð hagræðing 400 milljónir króna miðað við 50 stöðugildi eða 8 mkr á hvert eitt þeirra. Með slíkri nálgun má segja að um 50 mkr tapist úr veltu samfélaganna, laun, rekstur fasteigna o.fl.,“ segir Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri sambandsins.

Stjórnin hefur sent frá sér svohljóðandi ályktun: „Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga mótmælir harðlega ákvörðun Landsbanka hf um lokun útibúa bankans í Króksfjarðarnesi, Bíldudal, Flateyri og Súðavík, sem tilkynnt var þann 24. maí s.l. undir titlinum „Landsbankinn hagræðir í rekstri“.

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga telur að þessi aðgerð Landsbanka hf sé aðför að þjónustu við íbúa og atvinnulíf í samfélögum á Vestfjörðum. Aðgerðin taki í engu tillit til landfræðilegra aðstæðna og þar með jafnræði gagnvart viðskiptavinum bankans.

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga bendir að fábreytni atvinnulífs er talin ein af meginskýringum á fækkun íbúa á Vestfjörðum. Hafa aðgerðir til að sporna við þeirri þróun verið meginviðfangsefni stjórnvalda á síðustu áratugum. Aðgerð Landsbanka hf mun auka á þennan vanda og gengur bankinn þar í raun gegn stefnu stærsta eiganda síns.

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga harmar því þessa fækkun stöðugilda og þá erfiðleika sem viðkomandi einstaklingar standa nú frammi fyrir við ákvörðun bankans. Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga krefst því þess að Landsbankinn hf endurskoði þessa ákvörðun sína og komi til samráðs við stjórnvöld og samfélög á Vestfjörðum um ásættanlega úrlausn mála.“

thelma@bb.is



bb.is | 18.06.13 | 15:58 Mugison með tónleika og leitin mikla að píanói

Mynd með frétt Tónlistarhátíðin Við Djúpið hefst á morgun, miðvikudag, á því að Örn Elías Guðmundsson eða Mugison eins og hann er betur þekktur fleytir hátíðinni af stað með hádegistónleikum kl. 12.10 í Grunnskóla Ísafjarðar. Opnunarhátíðin fer svo fram kl. 20 í Hömrum, menningarhúsi ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 14:48Minnisvarði um Sigurð frá Vigur

Mynd með fréttAfhjúpaður var í eynni Vigur á Ísafjarðardjúpi á föstudag minnisvarði um Sigurð Bjarnason frá Vigur, en hann lést í janúar á síðasta ári, 96 ára að aldri. Sigurður lét eftir sig eiginkonu, Ólöfu Pálsdóttur myndhöggvara, og tvö börn, Hildi Helgu og ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 13:03Mikið um dýrðir á þjóðhátíðardaginn

Mynd með fréttMikið var um dýrðir á Ísafirði í gær, þjóðhátíðardag Íslendinga, og margir mættu prúðbúnir í bæinn eins og sést á meðfylgjandi myndum. Hátíðarhöldin hófust með skrúðgöngu frá Silfurtorgi þar sem lögreglan og skátarnir fóru í fararbroddi að Eyrartúni þar sem skemmtidagskráin ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 10:54Helvítis basl að verða rithöfundur

Mynd með fréttEiríkur Örn Norðdahl er Ísfirðingum að góðu kunnur enda fæddur og uppalinn í bænum. Hann hefur getið sér gott orð sem einn af framsæknustu rithöfundum þjóðarinnar og jafnframt er hann handhafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár fyrir skáldsöguna Illsku. Hún fór sigurför ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 09:13Miklar framkvæmdir á Vestfjarðavegi við Breiðafjörð

Mynd með frétt„Við erum að vinna í fyllingum út í sjó og svo erum við búnir að vera í Kjálkafirði og erum þar að vinna við að steypa sökkla undir brú sem kemur þar og verður 116 metra löng. Í Mjóafirði erum við ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 07:41Tónlistarhátíðin Við Djúpið að hefjast

Mynd með fréttTónlistarhátíðin Við Djúpið fer fram á Ísafirði í ellefta skipti í sumar og byrjar á morgun. Hátíðin er venjulega haldin dagana í kringum sumarsólstöður þegar sólin er hvað hæst á lofti. Frá upphafi hefur námskeiðahald verið meginstef tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið. Framúrskarandi ...
Meira

bb.is | 17.06.13 | 10:19Gleðilega hátíð!

Mynd með fréttBæjarins besta og bb.is óska lesendum sínum gleðilegrar hátíðar, en í dag fagna Íslendingar stofnun lýðveldisins árið 1944. Í dag eru einnig 202 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar, helsta leiðtoga Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni, en hann fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. ...
Meira

bb.is | 17.06.13 | 09:19Hátíðarhöld á Hrafnseyri

Mynd með fréttHátíðardagskráin í dag, 17. júní, að Hrafnseyri við Arnarfjörð hefst kl. 12.30 með hátíðarguðsþjónustu í Hrafnseyrarkapellu þar sem Arnaldur Finnsson guðfræðingur predikar en séra Hildur Inga Rúnarsdóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari. Kirkjukór Þingeyrarkirkju syngur. Að guðsþjónustu lokinni verður boðið upp á ...
Meira

bb.is | 16.06.13 | 11:27Ég er frjáls - Melódíur minninganna

Mynd með fréttJón Kr. Ólafsson á Bíldudal söng inn á sína fyrstu plötu árið 1969. Á sínum tíma söng hann mikið með Ingibjörgu Guðmundsdóttur, en hún er einna þekktust í samhenginu BG og Ingibjörg. Hún gaf út sína fyrstu plötu árið 1970 og ...
Meira

bb.is | 16.06.13 | 09:20Heimilisofbeldi: Hópmeðferð fyrir börn hætt

Mynd með frétt„Þetta úrræði hefur ekki verið notað af okkur þar sem það hefur bara verið til boða fyrir sunnan. Ástæða þess að það er lagt niður er minnkandi þörf. Ég vil taka fram að börn sem búa við slíkar aðstæður hér munu ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi