bb.is | 01.06.2012 | 10:54Sunna Karen hlaut aðalverðlaun Tónlistarskóla Ísafjarðar
Sunna Karen Einarsdóttir, nemandi við Tónlistarskóla Ísafjarðar, fékk aðalverðlaun skólans á lokahátíð hans sem haldin var í Ísafjarðarkirkju í fyrradag. Verðlaunin sem gefin eru að Hraðfrystihúsinu Gunnvör, eru veitt fyrir framúrskarandi ástundun og námsárangur. Við skólaslitin voru veittar viðurkenningar og skírteini afhent og fengu flestir nemendanna verðlaun fyrir góðan árangur í tónfræðigreinum sem og fyrir frábæran árangur í hljóðfæraleik. Verðlaunin voru gefin af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru velunnarar skólans. Verðlaun Ísfirðingafélagsins í Reykjavík fyrir lofsverða ástundun og frábæran árangur í tónlistarnámi hlaut Mirjam Mäekelle.Verðlaun fyrir góðan árangur í tónfræðigreinum á ýmsum námsstigum hlutu Sigþór Hilmarsson Lyngmo, Nikodem Júlíus Frach, Guðrún Kristín Kristínardóttir, Hekla Hallgrímsdóttir, Erla María Björgvinsdóttir, Jóna Sigurlína Pálmadóttir, Katrín Björk Guðjónsdóttir og Davíð Sighvatsson.
Nemendur sem sköruðu fram úr í tónlistarnáminu í útibúum skólans á Þingeyri var Jóhanna Jörgensen Steinsdóttir, á Flateyri Karolina Julia Switalska og á Suðureyri Sturla Snorrason.Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í tónlistarnáminu í vetur fengu Hanna Lára Jóhannsdóttir, Maksymilian Haraldur Frach, Mikolaj Ólafur Frach og Kristín Harpa Jónsdóttir.
Fjölbreytt tónlistaratriði voru flutt á skólaslitunum en meðal þeirra sem komu fram voru strengjasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar sem lék undir stjórn Januszar Frach og gítarhópur sem lék undir forystu Sig. Friðriks Lúðvíkssonar. Kórar skólans sungu undir stjórn Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur við undirleik Huldu Bragadóttur. Sunna Karen lék á píanó og Mirjam Mäekalle lék á saxófón ásamt fleiri saxófónleikurum
gudmundur@bb.is
bb.is | 25.05.13 | 10:44 Straumleysi mest á Vestfjörðum
Meira
bb.is | 25.05.13 | 09:17„Menningarmiðstöðin verður að stofna hollvinasamtök“
Meira
bb.is | 24.05.13 | 14:48Ástandið ógn við atvinnuöryggi
Meira
bb.is | 24.05.13 | 13:02Mikið bíósumar á Ísafirði
Meira
bb.is | 24.05.13 | 10:53Stofnvísitalan segir ekki allt
Meira
bb.is | 24.05.13 | 09:12Algjörlega galið að stöðva rækjuveiðar
Meira
bb.is | 24.05.13 | 07:40Samstarfssamningur undirritaður um sjávartengda nýsköpun
Meira
bb.is | 23.05.13 | 16:49Milljarða framkvæmdir í Ísafjarðarbæ
Meira
bb.is | 23.05.13 | 14:47Kæruferli vegna útboðs?
Meira
bb.is | 23.05.13 | 13:01Aðalfundi Orkubús Vestfjarða frestað vegna nýrrar ríkisstjórnar
Meira