Frétt

Frá Bolungarvíkurgöngum.
Frá Bolungarvíkurgöngum.

bb.is | 21.12.2010 | 16:45Minni steypa notuð í Bolungarvíkurgöng

Meira var um viðgerðir á veggjum við gerð Bolungarvíkurganga en í Héðinsfjarðargöngum. Þetta kom í ljós við rannsókn á hagkvæmni mismunandi aðferða við sprautusteypustyrkingar sem gerð var með styrk úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Verkefnið fólst í að meta kosti og galla þess að klára bergstyrkingar með sprautusteypu samhliða gangagerð eða skipta styrkingum upp í annars vegar vinnustyrkingar, unnar samhliða grefti ganganna, og hins vegar lokastyrkingar, sem gerðar væru eftir að búið er að sprengja göngin. Ennfremur að mæla og bera saman mismunandi uppgjörsaðferðir fyrir sprautusteypu og meta kosti og galla þess að gera upp steypu samkvæmt m³, mælt frá steypustöð, og í m², sem þykkt á bergveggjum og þaki ganga.

Dregin var sú ályktun af því að meira væri um viðgerðir í Bolungarvíkurgöngum, að hagkvæmni í tíma sem fæst með að sprauta sem mest samhliða grefti er að hluta til eða öllu leyti eytt af óhagkvæmni fyrir verkkaupa vegna aukinnar steypu og fyrir verktaka vegna tíma sem fer í viðgerðir. Samanburður á notkun sprautusteypu í Bolungarvíkurgöngum og Héðinsfjarðargöngum sýndi að notkun steypu er meiri í Héðinsfjarðargöngum en fyrir sambærilegt berg eða berggæðamat í Bolungarvíkurgöngum.

Í Héðinsfjarðargöngum er mæld þykkt að jafnaði 30% meiri en kenniþykkt í veggjum og 45% meiri í lofti, en í Bolungarvíkurgöngum 27% meiri í veggi og 35% meiri í loft. Byggt á þessu er dregin sú ályktun að þykkt hafi verið jafnari og nýting steypu betri í Bolungarvíkurgöngum. Byggt á afkasta- og tímamælingum má álykta að lítill tímasparnaður sé í því að ásprauta sem mest samhliða grefti ganga.

Umframþykkt er að jafnaði meiri í Héðinsfjarðargöngum en Bolungarvíkurgöngum. Í Héðinsfirði er mæld þykkt að jafnaði 30% meiri en kenniþykkt í veggjum og 45% meiri í lofti, en í Bolungarvíkurgöngum 27% meiri í veggjum og 35% meiri í loft. Byggt á þessu er dregin sú ályktun að þykkt hafi verið jafnari og nýting steypu betri í Bolungarvíkurgöngum þar sem viðmiðið var þykktarflokkar.

Tími sem fer í ásprautun ganganna er heldur meiri í Héðinsfjarðargöngum en í Bolungarvíkurgöngum. Það skýrist að hluta til af 5-15% minni afköstum ásprautunartækja í Héðinsfirði og meira umframmagni þar. Ef leiðrétt er fyrir afköstum tækja er tími aðeins um 3% minni fyrir ásprautun Bolungarvíkurganga eða að jafnaði 0,37 klst./m göng (60-100 mm þykktir) fyrir Bolungarvíkurgöng á móti 0,38 klst./m göng fyrir Héðinsfjarðargöng.

Skýrslu um verkefnið má nálgast á vef Vegagerðarinnar.

thelma@bb.is

bb.is | 24.05.13 | 16:50 Ferðamenn afbóka vegna ástand vegarins um Kjálkafjörð

Mynd með frétt „Ég veit ekki hvaða lýsingarorð á að nota, þetta er gjörsamlega út úr korti hvernig Vegagerðin bregst við þessari vá á þessum vegi. Eins og að loka klukkan 16 á föstudegi yfir hvítasunnuhelgina um óákveðinn tíma með þeirri skýringu að ekki ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 14:48Ástandið ógn við atvinnuöryggi

Mynd með fréttSveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps lítur þá stöðu sem komin er upp á þjóðvegi 60 í Kjálkafirði alvarlegum augum. Mesti annatími ársins sé að ganga í garð og fyrirtæki eigi mikið undir því komið að samgöngur séu eins og best verður á kosið. Núverandi ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 13:02Mikið bíósumar á Ísafirði

Mynd með frétt„Það er greinilegt að Ísfirðingar er mjög ánægðir með að bíó sé partur af menningarlífinu sem bærinn bíður uppá,“ segir Gróa Böðvarsdóttir hjá Ísafjarðarbíó en nú um helgina hefst sumarvertíðin af fullum krafti. „Þetta eru auðvitað þessar klassísku sumarmyndir sem við ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 10:53Stofnvísitalan segir ekki allt

Mynd með fréttMisræmi er á milli stofnvísitölu rækju og ráðlagðra veiða Hafrannsóknastofnunar undanfarinna ára. Afli á sóknareiningu CPUE, sem er afli í kílóum á hverja klukkustund togtímans, hefur haldist á svipuðu róli á árunum 1974-2011. Á fyrri árum var lagt til að veitt ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 09:12Algjörlega galið að stöðva rækjuveiðar

Mynd með fréttÚthafsrækjuveiðar verða stöðvaðar 1. júlí en til stendur að endurskoða skipulag rækjuveiða við landið sem hafa verið frjálsar undanfarin ár. Líklegt þykir að gefnar verði út aflaheimildir á skip en ekki eru allir sammála um útfærsluna. Fyrirkomulag undanfarinna ár hefur haft ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 07:40Samstarfssamningur undirritaður um sjávartengda nýsköpun

Mynd með fréttHáskólasetur Vestfjarða og Háskólinn á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning um meistaranám í haf- og strandveiðastjórnun. Auk áframhaldandi samstarfs um meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun felur samningurinn einnig í sér samstarf stofnanna tveggja um nýtt meistaranám, sjávartengda nýsköpun. Sjávartengd nýsköpun er nýstárleg ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 16:49Milljarða framkvæmdir í Ísafjarðarbæ

Mynd með fréttÓvenju mikið er um stórar og umfangsmiklar framkvæmdir og fjárfestingar í Ísafjarðarbæ á næstu misserum. Um er að ræða verkefni sem sum hver hlaupa á hundruðum milljóna króna. Landsnet og Orkubú Vestfjarða hyggjast reisa 320m² hús að Skeiði 7 sem á ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 14:47Kæruferli vegna útboðs?

Mynd með fréttSigurður G. Guðjónsson hæstaréttalögmaður kannar þessa dagana möguleika á kæru vegna útboðs á almenningssamgöngum í Ísafjarðarbæ. Eigandi fjögurra fyrirtækja, Friðfinnur Sigurðsson á Þingeyri, sem lagði inn fjögur tilboð í verkið, hefur leitað til Sigurðar vegna þessa. Öll tilboð fyrirtækja Friðfinns voru ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 13:01Aðalfundi Orkubús Vestfjarða frestað vegna nýrrar ríkisstjórnar

Mynd með frétt„Katrínu Júlíusdóttir þótti ekki við hæfi að skipa nýja stjórn Orkubúsins á síðustu starfsdögum sínum og því var ákveðið að fresta aðalfundinum,“ segir Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sem á sæti í stjórn fyrirtækisins, en aðalfundinn átti að halda í gær. Opinn ársfundur ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 10:58Mun aukin áhersla á verknám skila tilætluðum árangri?

Mynd með fréttNý ríkisstjórn leggur ríka áherslu á að efla menntakerfið með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi samkvæmt stefnuyfirlýsingu. Þar segir að áhersla verði lögð á samráð við hagsmunaaðila þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi ríkisins um skipulag náms og kennslu. ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi