Frétt

Tiger Woods
Tiger Woods

visir.is | 08.02.2010 | 16:54Tiger kominn aftur til Elínar

Tiger Woods er kominn aftur í faðm fjölskyldunnar eftir að hafa lokið nokkurra vikna dvöl á hæli til að ná stjórn á kynhvöt sinni. Gengið var út frá því sem vísu að hjónabandinu væri lokið eftir að hann viðurkenndi að hafa haldið framhjá sinni sænsku eiginkonu Elinu Nordgren. Hver konan kom þá fram af annarri og lýsti yfir ástarsambandi við golfarann. Þegar framhjáhaldið komst í hámæli lýsti Woods því yfir að hann væri hættur þáttöku í golfmótum um óákveðinn tíma.

Menn velta því nú fyrir sér hvort næsti áfanginn hjá honum sé að hefja keppni á nýjan leik.

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli