bb.is | 08.02.2010 | 16:55Um 140 gestir á þorrablóti á Suðureyri
Þorrablót foreldrafélags Grunnskólans Suðureyri var haldið í Félagsheimili Súgfirðinga á föstudag og þótti heppnast vel. Gestir blótsins voru um 140 á aldrinum tveggja ára til sjötugs. Hver fjölskylda komi með mat sinn í trogi. Skemmtiatriði voru margvísleg með þátttöku foreldra, nemenda og kennara, m.a. voru á dagskránni söngur, hljóðfæraleikur, spurningakeppni og ræða var flutt af einum nemanda. Eftir borðhald var dansað. Foreldrafélagið sá um allan undirbúning og stjórnuðu blótinu með aðstoð annarra foreldra. Þátttakendur voru nemendur grunnskólans ásamt foreldrum og nánustu ættingjum. Kennurum var einnig boðið. Frá þessu er sagt á vef Grunnskólans á Suðureyri.thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.