Frétt

Margrét og Elfar Logi fara með öll hlutverkin í leikritinu.
Margrét og Elfar Logi fara með öll hlutverkin í leikritinu.

bb.is | 08.02.2010 | 15:52Heilsugæslan í Kópavogi

Gamanleikritið Heilsugæslan, sem er hápólitískur gamanleikur, verður sýnt í Kópavogi um næstu helgi. Heilsugæslan er gamanleikur eftir Lýð Árnason, lækni og leikstjóra og fara þau Elfar Logi Hannesson og Margrét Sverrisdóttir með öll hlutverkin í leikverkinu sem hefur hlotið gríðarlega góða undirtektir en það var frumsýnt í október. Að undanförnu hefur Heilsugæslan verið á ferð og flugi og var t.d. á Norðurlandi fyrir stuttu þar sem verkið var sýnt við góðar undirtektir. Heilsugæslan verður sýnd á Cafe Catalinu, Hamraborg 11, Kópavogi, föstudaginn 12. febrúar og laugardaginn 13. febrúar kl. 21.00 bæði kvöldin. Miðasala er hafin á Cafe Catalinu og er þegar uppselt á sýninguna 13. febrúar. Hægt er að panta miða í 554-2166.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli