Frétt

mbl.is | 08.02.2010 | 15:04Handtekinn vegna klámmmynda

Fyrrum yfirendurskoðandi Wales á Bretlandseyjum hefur verið handtekinn vegna gruns um að hann hafi vistað klámmyndir á tölvu á vinnustað sínum. Endurskoðandinn sagði af sér embætti í síðustu viku. Breska ríkisútvarpið BBC segir, að Jeremy Colman, 61 árs, hafi sagt af sér embætti yfirendurskoðanda Wales á miðvikudag án skýringa. Daginn eftir var lögregla kölluð á skrifstofuna til að rannsaka ásakanir um að klám væri vistað í vinnutölvu.

Endurskoðunarskrifstofa Wales sagði síðar í yfirlýsingu, að Colman hefði sagt af sér vegna rannsóknar hegðunarbroti.

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli