Frétt

mbl.is | 08.02.2010 | 15:03Íslendingaslagur í undanúrslitum

Róbert Gunnarsson mun mæta samherjum sínum úr íslenska landsliðinu, Guðjóni Val Sigurðssyni, Ólafi Stefánssyni og Snorra Steini Guðjónssyni í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í handknatteik þegar Gummersbach og Rhein-Neckar Löwen eigast við. Róbert gengur til liðs við Rhein-Neckar Löwen í sumar. Sigurvegari ofangreinds leiks mætir annað hvort HSV Hamburg eða Tus N-Lübbecke, sem Heiðmar Felixson og Þórir Ólafsson leika með, í úrslitaleik sunnudaginn 11.apríl í Color Line íþróttahöllinni í Hamborg. Daginn fara undanúrslitaleikirnir fram á sama stað.

Gummersbach komst í undanúrslit bikarkeppninnar í gær með því að leggja Kiel, 35:28, á heimavelli í Eugen Hass íþróttahúsinu í Gummersbach. Liðin mættust í úrslitum bikarkeppninnar á síðasta ári þar sem Kiel hafði betur.

Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2003 sem Kiel nær ekki inn í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar í handknattleik.

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli