mbl.is | 08.02.2010 | 14:02Eiga lífstíðarfangelsi yfir höfði sér fyrir að grafa stúlku lifandi
Saksóknarar í Tyrklandi krefjast þess að faðir og afi 16 ára gamallar stúlku, sem var grafin lifandi fyrir að eiga vingott við drengi, verði dæmdir í ævilangt fangelsi. Faðir stúlkunnar, Ayhan Memi, sem er fertugur, og Fethi Memi, 65 ára, voru handteknir eftir að lík Medine Memi fannst grafið í hænsnagirðingu utan við hús fjölskyldunnar í bænum Kahta í Adiyamanhéraði þar sem Kúrdar eru í meirihluta. Stúlkan hafði þá ekki sést í 40 daga.Krufning leiddi í ljós mold í lungum og maga stúlkunnar sem benti til þess að hún hafi verið grafin lifandi.
Faðir og afi stúlkunnar voru að handteknir í byrjun desember en þeir hafa neitað að tjá sig við lögreglu og saksóknara. AFP fréttastofan hefur eftir heimildarmönnum, að feðgarnir verði líklega ákærðir fyrir morð að yfirlögðu ráði en samkvæmt tyrkneskum lögum eru viðurlög við slíku ævilangt fangelsi.
Fréttastofan hefur eftir Muhammed Cevik, sem á héraðsfréttablaðið Kahta, að stúlkan hafi alderi farið í skóla og hugsanlega varla kunnað að lesa og skrifa.
Svokölluð heiðursmorð eru enn nokkuð algeng í suðvesturhluta Tyrklands þar sem Kúrdar eru fjölmennastir. Þá er skotið á fundum svonefndra fjölskylduráða sem tilnefna einn úr sínum röðum til að myrða kvenkyns ættingja, sem þykir hafa varðað rýrð á heiður fjölskyldunnar, oftast með því að eiga ástarævintýri utan hjónabands.
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.