mbl.is | 08.02.2010 | 14:00Handtekinn fyrir líkamsárás
Lögreglan á Akranesi var í síðustu viku kölluð til vegna manns sem lá meðvitundarlaus á Bárugötunni. Hann reyndist vera kominn til meðvitundar þegar að var komið en mikið blæddi úr höfði. Var hann fluttur á sjúkrahús með sjúkrabifreið. Lögreglan segir að komið hafi í ljós að maðurinn hafði verið sleginn og í framhaldinu var svo handtekinn maður sem játaði að hafa lent í slagsmálum en bar við sjálfsvörn.Þá missti ökumaður bíls á leið norður Vesturlandsveg stjórn á bínum með þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar. Ökumaðurinn sem var einn í bílnum slasaðist og var fluttur á sjúkrahús með sjúkrabifreið.
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.