| Fyrri mynd | Næsta mynd |
bb.is | 08.02.2010 | 14:24Mikið stuð á Stútungi
Stútungur, árleg vetrargleði Önfirðinga, var haldinn í íþróttahúsinu á Flateyri á laugardagskvöld og þótti heppnast vel. Fjöldi manns voru þar saman komnir til að gæða sér á ljúffengum þorramat og hlýða á vönduð og metnaðarfull skemmtiatriði. „Þetta var alveg frábært. Það var mikið stuð og dansað fram á nótt. Svo var boðið upp á frábæran mat frá SKG veitingum,“ segir Björn Gunnarsson, einn af skipuleggjendum blótsins. Að vanda var boðið upp á heimatilbúin skemmtiatriði og að þessu sinni var fyrirmyndin rafræna leiðsögukerfið „Flateyri: hús og fólk“ sem tekið var í notkun í vor. „Hvert atriði byrjaði á því að einhver á sviðinu setti á sig IPod og þá byrjaði saga eða söngur,“ segir Björn. Veislustjóri var Barði Önundarson og fórst honum það vel úr hendi. Að loknu borðhaldi lék hljómsveitin Glymskrattinn frá Reykjavík fyrir dansi en þar var í broddi fylkingar Önfirðingurinn og Vestfirðingur ársins Halldór Gunnar Pálsson. Skemmtu Stútungsgestir sér konunglega að sögn Björns.thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.