Frétt

mbl.is | 08.02.2010 | 13:01Ásgeir Örn átti stórleik

Ásgeir Örn Hallgrímsson, landsliðsmaður í handknattleik, átti stórleik í sínum fyrsta leik með Faaborg HK í næst efstu deild danska handknattleiksins í gær. Faaborg HK kom nokkuð á óvart með því að leggja AG Håndbold, 34:28, á útivelli. Þetta var fyrsta tap AG-liðsins á leiktíðinni en liðið situr áfram í efsta sæti. Faaborg Hk er í þriðja sæti.

Ásgeir Örn mun hafa leikið afar vel jafnt í vörn sem sókn fyrir Faaborg-liðið sem hann gekk til liðs við á fimmtudaginn eftir að GOG varð gjaldþrota á meðan Evrópukeppnin í Austurríki stóð yfir. Hann skoraði sex mörk og var einu sinni vísað af leikvelli í tvær mínútur.

AG er efst í deildinni með 28 stig að loknum 15 leikjum. Efsta lið deildarinnar í vor fer beint upp í úrvalsdeild. Faaborg er í þriðja sæti með 22 stig en liðin sem enda í öðru til fjórða sæti að lokinni deildakeppninni í vor fara í umspil um sæti í úrvalsdeild.

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli