mbl.is | 08.02.2010 | 12:00Upson seldur frá West Ham í sumar
David Sullivan, annar aðaleigenda enska knattspyrnufélagsins West Ham, segir að það sé óumflýjanlegt að selja miðvörðinn öfluga Matthew Upson frá félaginu í sumar. „Ef við fáum gott verð fyrir hann, verðum við að selja hann. Upson vill gera lokatilraun til þess að spila í Meistaradeild Evrópu og það er ekki hægt að standa í vegi fyrir honum. Nú er hann á hátindinum sem miðvörður en á varla nema 4-5 ár eftir á toppnum og það er því ekki svo hræðilegt að selja hann," sagði Sullivan við Sport.co.uk í dag.Upson hefur verið sterklega orðaður við sitt gamla félag, Arsenal, en þar var hann í sex ár. Upson náði þó aðeins að spila 35 deildaleiki á þeim tíma og fór til Birmingham árið 2003. Þaðan lá leiðin síðan til West Ham árið 2007 og Upson hefur nú spilað 200 deildaleiki með þessum tveimur liðum, ásamt 18 landsleikjum fyrir Englands hönd.
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.