mbl.is | 08.02.2010 | 11:59Fluttu út sauðfjárafurðir fyrir 1,9 milljarða
Á síðasta ári voru flutt út sauðfjárafurðir fyrir rúmlega 1.900 milljónir króna. Þar af var flutt út lambakjöt fyrir 1,5 milljarða. Aukin útflutningur má rekja til minni sölu innanlands og hagstæðara gengis krónunnar. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands, en vitnað er til þeirra á vef Landssamtaka sauðfjárbænda. Flutt voru út tæp 3.075 tonn af kjötafurðum á árinu, þar af 577 tonn af sviðum og innmat. Verðmætið var alls (FOB) tæpir 1.5 milljarðar króna.Meðal FOB verð á kjöti var 557 kr/kg yfir allt árið en athuga ber að ekki er búið að reikna þetta verð yfir í ígildi heilla skrokka. Meðalverð var síðan 172 kr/kg fyrir svið og innmat.
Ef horft er á verðmæti afurðanna fór mest til Noregs (27,8%), en þar á eftir koma Bretland, Færeyjar og Spánn. Ef horft er á magn fór mest til Bretlands, en þar hefur verið ágætur markaður fyrir ódýrari hluta kjötsins. Athygli vekur að lítið var flutt af lambakjöti til Bandaríkjanna.
Að auki voru flutt út rúm 2.700 tonn af gærum fyrir tæpar 230 milljónir króna. Meðal FOB verð á þeim var því 83 kr/kg. Mest magn af gærum fer til Kína, Þýskalands og Pakistan.
Ennfremur voru flutt út 540 tonn af ull og ullarvörum fyrir tæpar 210 milljónir króna. Meðal FOB verð á kíló var 384 kr/kg. Tæp 90% af ullarútflutningnum (að magni til) fer til Bretlands.
Alls eru þetta því rúm 6.300 tonn af afurðum sem skila gjaldeyristekjum upp á rúmar 1.900 milljónir króna.
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.