bb.is | 08.02.2010 | 13:28KFÍ sigraði Val
Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar sigraði Val sannfærandi á Torfnesi í gær. Lokatölur urðu 89-65. Igor Tratnik hjá KFÍ var stigahæsti maður leiksins með 33 stig. Hann tók einnig 11 fráköst. Craig Schoen stýrði leik liðsins af öryggi og skoraði 16 stig, tók 3 fráköst, gaf 7 stoðsendingar og stal 8 boltum. Tveir leikmenn léku sinn fyrsta heimaleik fyrir KFÍ í gær en það voru Atli Rafn Hreinsson og Almar Guðbrandsson. KFÍ situr nú sem fastast í efsta sæti í 1.deild karla með 24 stig, fjórum stigum á undan Val sem er í öðru sæti.kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.