| Fyrri mynd | Næsta mynd |
bb.is | 08.02.2010 | 13:05Góð stemmning á þorrablóti Hnífsdælinga
Um 160 gestir mættu á hið árlega Þorrablót Hnífsdælinga sem var haldið á laugardag í Félagsheimilinu í Hnífsdal. Var þetta í 62. sinn sem blótið var haldið. „Það var rosalega góð stemmning og mikið stuð. Skemmtiatriðin voru alveg æðisleg og mikið gert grín af sveitungum,“ segir Margrét Skúladóttir sem sat í skemmtinefnd fyrir blótið en þorrablótið er liður í fjáröflun kvenfélagsins Hvatar en sem kunnugt er gefur kvenfélagið árlega til góðra málefna af miklum rausnarskap. Eftir hefðbundna dagskrá var síðan slegið upp í dansleik þar sem Gummi Hjalta og Stuðboltarnir sáu um undirleik af sinni alkunnri snilld. „Ballið gekk mjög vel, það var töluvert af fólki sem kom bara á ballið og hljómsveitin stóð sig með prýði, enda vanir menn þar á ferð,“ segir Margrét, en hljómsveitina skipuðu þeir Guðmundur Hjaltason, Alfreð Erlingsson, Þorsteinn Bragason og Hjónabandssonurinn Brynjólfur Óli Árnason.kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.