Frétt

Náttúrustofa Vestfjarða.
Náttúrustofa Vestfjarða.

bb.is | 02.02.2010 | 16:50Lagt til að náttúrustofur komi að vinnslu náttúruverndaráætlana

Lagt hefur verið til að náttúrustofur komi að undirbúningi og framkvæmd náttúruverndaráætlana í samræmi við margháttað hlutverk þeirra samkvæmt lögum. Þetta kemur fram í breytingartillögu sem Einar K. Guðfinnsson, þingmaður NV-kjördæmis, hefur lagt fram á Alþingi við þingályktunartillögu að náttúrverndaráætlun fyrir árin 2009-2013. Í náttúruverndaráætlun umhverfisráðherra til ársins 2013 felst friðlýsing þrettán svæða á næstu fimm árum, þar á meðal svæðin Snæfjallaströnd-Kaldalón og Látrabjarg-Rauðasand.

„Náttúrustofurnar eru grónar og góðar vísindastofnanir á landsbyggðinni. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt á því sviði sem þær starfa. Þær eru líka einn af hornsteinum þeirrar uppbyggingar á vísinda- og rannsóknarsviði sem hefur átt sér stað utan höfuðborgarsvæðisins. Það hefur hins vegar reynst nauðsynlegt að berjast mjög fyrir tilveru þeirra. Einn liður í því að treysta forsendur þeirra væri að ætla þeim meira hlutverk í náttúruverndaráætlunum, enda falla þær algjörlega að því lögformlega hlutverki sem stofunum er ætlað,“ segir í nefndaráliti minnihluta umhverfisnefndar Alþingis.

Í álitinu segir jafnframt: „Einar K. Guðfinnsson tók þessi mál upp á Alþingi 17. nóvember sl. þegar mælt var fyrir tillögu til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun. Er skemmst er frá því að segja að umhverfisráðherra brást afar vel og jákvætt við og sagði: „Ég þakka sérstaklega hv. þm. Einari K. Guðfinnssyni fyrir þessa ádrepu um Náttúrustofurnar og mikilvægi þeirra því að ég sannarlega deili þeirri upplifun og þeirri skoðun að mikilvægi þeirra er gríðarlegt. Þetta eru ekki bara umsagnaraðilar heldur ekki síður mikilvægar burðarstoðir oft og einatt í sveitarfélögunum.“

Enn fremur sagði ráðherra í ræðu sinni: „Ég mun ekki gera neitt annað … en styðja og standa með þingmanninum í því að Náttúrustofurnar hafi meiri hlutverk og ef það er verkefni sem umhverfisnefnd getur tekið að sér í umfjöllun og meðförum varðandi náttúruverndaráætlun sé ég ekkert því til fyrirstöðu, þ.e. að samstarfið við náttúrustofurnar sé aukið og styrkt að því er varðar framkvæmdina á náttúruverndaráætlun og að það sérstaklega nefnt í þingsályktuninni þegar hún verður afgreidd út úr þinginu finnst mér bara eðlilegt og jákvætt.“

Þess vegna vekur furðu sú afstaða meiri hlutans að sniðganga þessar mikilvægu vísindastofnanir á landsbyggðinni þegar kemur að því að móta verklag við náttúruverndaráætlanir. Brýnt er því að bæta úr þessu og hrinda í framkvæmd því stefnumarkandi atriði sem umhverfisráðherra lagði áherslu í ræðu sinni. Það getur varla hafa verið ætlun meiri hlutans að virða tilmæli ráðherrans að vettugi.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli