Frétt

Guðjón Már Þorsteinsson.
Guðjón Már Þorsteinsson.

Guðjón Már Þorsteinsson | 02.02.2010 | 09:35Framtíðin er okkar

Ég tók ákvörðun um það seint að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar vorið 2010. Á þessum umbrotatímum í samfélaginu hefur þátttaka í stjórnmálum kannski ekki verið það sem er mest spennandi. Verkefnin eru eftir sem áður þau sömu og áður, og þau þarf að leysa. Ég hef verið Sjálfstæðismaður frá því ég varð fyrst gjaldgengur og hef kynnst, stutt við bakið á og starfað með fjölmörgu góðu fólki þessum vettvangi um árabil. Nú er hins vegar komið að mér. Ég gef kost á mér af heilindum og fullri einlægni, því ég er tilbúinn að vinna fyrir alla bæjarbúa.

Einhverjir munu tengja framboð mitt íþróttum og er það skiljanlegt, enda hef ég áratuga reynslu þaðan. Það er þó ekki megin ástæða þess að ég býð fram krafta mína. Ég er mikill fjölskyldumaður og hef alið upp börn mín á Ísafirði og það hefur verið einstaklega gott. Alltaf er það samt svo að sitt hvað má gera betur og það eigum við alltaf að hafa að markmiði. Ég hef gengið í gegnum erfiðleika bæði persónulega og með öðrum, og reynslan hefur kennt mér að láta ekki deigan síga fyrr en í fulla hnefana – að Vestfirðinga sið.

Tímarnir framundan bjóða að sjálfsögðu ekki upp á neinn rósadans, en við skulum standa saman og nýta okkur þau tækifæri sem alltaf falla til á tímum sem þessum. Ég gæti hér komið með nokkrar flottar setningar, sem þið sjálfsagt hafið séð of oft í pistlum sem þessum, og lofað öllu fögru. Það er ekki við hæfi nú, þar sem að ég gæti aldrei0 staðið við slík fyrirheit. Það sem ég lofa, er að gera mitt allra besta fyrir sveitarfélagið og íbúa þess. Ég hef óbilandi trú á Ísafjarðarbæ og Vestfjörðum og hef verið ötull við kynningu á kostum þeirra.

Hér er mikill mannauður, þekking og hugvit. En það er samt ekki nóg að hafa vopnin, ef við kunnum ekki að beita þeim. Ferðaþjónusta er ennþá ung hérna og þar er sóknarfæri sem vert er að nýta. Bæjarstjórn hefur ríkar skyldur t.d. við að hlúa að slíkri atvinnustarfsemi, eins og reyndar flestri annarri. Öllum er ljóst að byggð mun ekki blómgast hér, ef atvinnuframboð verður ekki áfram sem fjölbreyttast og nógu mikið.

Nokkuð kann ég fyrir mér í félagsmálum og almannatengslum. Á listanum hjá okkur eru miklar breytingar fyrirsjáanlegar. Gott fólk er að stíga til hliðar, en ekki síðra fólk að gefa kost á sér. Það verður ný forysta í Sjálfstæðisflokknum hér í bæ og ríkir mikil tilhökkun í hópnum. Ég er hluti af þessum góða hóp og hlakka til, enda framtíðin okkar.

Ég vona að ég fái stuðning í 4-6 sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna.

Guðjón Már Þorsteinsson.

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (4 Komment )

  1. Komment skrifaði Núpur þann 02.02.10 | 20:05

    Níels þessar spurningar eiga heima í landspólitík ekki bæjarnstjórn, því lítil eru hennar völd í þessum efnum.

    Persónulega styð ég 1,2 og 4 grein. Hef ekki kynnt mér 3

    Inn í fyrningarleiðina þyrfti reyndar að fyrna eitthvað af skuldum með.....

    Skötusel var hent af gresleppuköllum í tonna vís, því ekki höfðu þeir kvóta. Þetta er spurningin um að koma veiddum fiski í land, ekki aftur dauðum í sjó.

    Strandveiðum tek ég fagnandi, en öll aukning héðan af þyrfti að koma frá áður fyrndum kvóta.

    Gangi þér vel Gaui í prófkjörinu.

  2. Komment skrifaði níels a. ársælsson þann 02.02.10 | 15:20

    Sæll Hemmi.

    Vonandi Möller geri Vestfirði að einu sveitafélagi.

  3. Komment skrifaði Hemmi þann 02.02.10 | 14:39

    Sæll Níels það gleður mig óneitanlega hvað þú er áhugasamur um sveitastjórnarmál. Ég verð samt að spyrja þig hvort þú sért fluttur í höfuðstað Vestfjarða ? Það hlyti að teljast stór-tíðindi. Spurningin er hvar ætlar þú að kjósa ?????

    Með virðingu og vinsemd H

  4. Komment skrifaði níels a. ársælsson þann 02.02.10 | 13:42

    Nokkrar spurningar til hæstvirts Guðjóns frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins.

    1. Hvert er álit þitt á boðaðri fyrningarleið stjórnvalda ?

    1. Hvert er álit þitt á Skötusels-frumvarpi sjávarútvegsráðherra ?

    3. Hvert er álit þitt á fyrirhuguðum breytingum á stjórn fiskveiða er lúta að því að úthafsrækja verði tekin út úr kvóta ?

    4.
    a) Hvert er álit þitt á "strandveiðum" ?

    b) Ertu fylgjandi núverandi fyrirkomulagi og því að stjórnvöld ætli að auka þær til muna ?

Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli