Frétt

Bolungarvík. Ljósm: © Jón Þorgeir Einarsson.
Bolungarvík. Ljósm: © Jón Þorgeir Einarsson.

bb.is | 06.11.2009 | 16:49Gera ráð fyrir íbúafjölgun

Nýtt aðalskipulag Bolungarvíkur gerir ráð fyrir lítilsháttar fólksfjölgun á næsta ári sem og að fjölgunin muni aukast eftir því sem líður á tímabilið og verði orðin 0,6% árið 2020. Samkvæmt því mun íbúum fjölga um fjörutíu manns á næstu 11 árum. Þetta kemur fram í drögum að aðalskipulagi sveitarfélagsins. Þar er þó tekið fram að margir þættir geti haft áhrif á íbúaþróunina og því sé erfitt að segja nákvæmlega til um mannfjöldabreytingar á gildistíma skipulagsins. Einnig geti hlutfallslegar sveiflur verið mun meiri í minni sveitarfélögum þar sem hver einstaklingur hefur mun meira vægi en í þeim stærri. Um það bil tvær fjölskyldur samsvara um 1% af íbúafjölda sveitarfélagsins. Mjög litla hreyfingu þarf því til að breyting á fólksfjölda verði vel merkjanleg.

Skipulagið miðar að því að bæta búsetuskilyrðin í Bolungarvík og er gert ráð fyrir að íbúum muni fjölga á skipulagstímabilinu. Íbúum Bolungarvíkur hefur hins vegar fækkað stöðugt síðustu tvo áratugina. Við upphaf síðasta skipulagstímabils árið 1980, voru íbúar Bolungarvíkur 1.266 en voru í desember 2008 orðnir 897. Fækkunin á tímabilinu er um 29% en á sama tíma hefur íbúum á landinu fjölgað um ríflega 22%. Bolvíkingum fjölgaði jafnt og þétt frá fimmta áratug síðustu aldar, og aukningin var mest á áttunda áratugnum. Um miðjan níunda áratuginn byrjaði Bolvíkingum að fækka aftur og er íbúafjöldinn nú svipaður því sem var á miðjum áttunda áratugnum. Mesta fækkunin í Bolungarvík, var á tíunda áratug síðustu aldar en dregið hefur úr fólksfækkun síðustu ár. Ýmsar skýringar hafa verið settar fram á þessari þróun og ber þar helst að nefna mannskæð snjóflóð á árinu 1995 og miklar breytingar í undirstöðuatvinnugrein svæðisins, sjávarútvegi.

Íbúaþróun er háð búferlaflutningum og náttúrulegri fjölgun, þ.e. fjölda fæddra umfram dána. Búferlaflutningar í Bolungarvík hafa jafnan verið neikvæðir síðustu 20 ár, þ.e. fleiri flytja frá sveitarfélaginu en til þess. Neikvæðastir voru flutningarnir á árunum 1990-1998 að árinu 1996 undanskildu, en síðan hefur dregið úr þeim. Síðasta ár var jákvætt en inni í þeim tölum eru áhrif vegna tímabundinna framkvæmda. Fyrstu tölur ársins 2009 benda til jákvæðari áhrifa.

Flutningsjöfnuður kynjanna hefur verið mjög jafn ef litið er á allt tímabilið frá 1986-2009 þó breytileikinn milli ára hafi verið mjög mikill. Náttúruleg fjölgun á tímabilinu hefur hins vegar verið jákvæð, þ.e. fæðingar hafa verði fleiri en dauðsföll og hefur það unnið á móti fólksfækkuninni. Nánar er greint frá íbúaþróuninni í drögum að aðalskipulaginu fyrir árin 2008-2020. Þau má nálgast á vef Bolungarvíkur.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli