bb.is | 20.10.2009 | 13:49Tíu titlar frá Vestfirska forlaginu
Vestfirska forlagið lætur engan bilbug á sér finna í kreppunni og sendir á þessu hausti frá sér tíu nýjar bækur. Þar á meðal Tíu sögur að vestan eftir Ólaf Helga Kjartansson, fyrrverandi sýslumann Ísfirðinga, Öll þau klukknaköll, frásagnir tuttugu og fimm prestskvenna frá ýmsum tímum í ritstjórn séra Ágústs Sigurðssonar, Guðrúnar Láru Ásgeirsdóttur og Önnu Sigurkarlsdóttur, 99 vestfirskar þjóðsögur eftir Finnboga Hermannson og smásagnasafn eftir Hafliða Magnússon frá Bíldudal.Hallgrímur Sveinsson, útgáfustjóri, segist bjartsýnn á bókavertíðina, það sé margsannað að bóklestur aukist á krepputímum og forleggjarar séu þegar farnir að finna fyrir því.
fridrika@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.