bb.is | 05.03.2009 | 13:02Hlaut menningarverðlaun DV
Vestfirðingurinn Helga Rakel Rafnsdóttir hlaut menningarverðlaun DV fyrir heimildarmyndina Kjötborg sem hún leikstýrði ásamt Huldu Rós Guðnadóttir. Kjötborg vann í flokki kvikmynda og var hún tilnefnd ásamt Brúðgumanum eftir Baltasar Kormák, Dagvaktinni eftir Ragnar Bragason, Smáfuglum eftir Rúnar Rúnarsson og Kvikmyndahátíðinni Skjaldborg á Patreksfirði. „Kjötborg er gullfalleg og lágstemmd „feelgood“ frásögn um afmarkað samfélag í borginni. Þeir Kristján og Gunnar verslunareigendur kunna að vera með síðustu kaupmönnunum á horninu en tilfinningin er samt sú að þeir hafi alltaf verið þarna - og muni vonandi alltaf vera þarna, því það kemst ágætlega yfir að þessir ágætu menn bjóða ekki aðeins upp á fjölbreytt úrval hvers kyns dagvöru heldur einnig trú, von og kærleika,“ segir um kvikmynda í DV.Nýbygging Grunnskólans á Ísafirði var einnig tilnefnd til verðlaunanna í flokki byggingarlistar en þar sigraði bygging Menntaskóla Borgarbyggðar. Menningarverðlaun DV eru árlegur viðburður þar sem veitt eru verðlaun fyrir einstakt framlag einstaklinga til menningarinnar, að mati dómnefndar í hverjum flokki. Að auki voru veitt netverðlaun og sérstök heiðursverðlaun sem forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti. Menningarverðlaun DV komu til sögunnar árið 1978 í framhaldi gagnrýnendaverðlauna sem kennd voru við Silfurlampann og Silfurhestinn. Síðan hafa verðlaunin verið árviss að undanskildum tveimur árum sem þau féllu niður. Verðlaunagripurinn er eftir listakonuna Huldu Hákon og kallast „Jónas“ eftir frumkvöðlinum, Jónasi Kristjánssyni, fyrrverandi ritstjóra DV.
birgir@bb.is
bb.is | 20.05.13 | 10:44 Þjálfar hunda sem taka úr þvottavél
Meira
bb.is | 20.05.13 | 09:21Fjórir bátar Byggðasafnsins fá aðhlynningu í sumar
Meira
bb.is | 19.05.13 | 10:43Iðja fyrir fólk sem hefur lítið fyrir stafni
Meira
bb.is | 19.05.13 | 09:20Viðburðaríkt sumar að Hnjóti
Meira
bb.is | 18.05.13 | 10:43Kræklingarækt og fiskeldi fara vel saman
Meira
bb.is | 18.05.13 | 09:17Undirbúningurinn kominn á fullt
Meira
bb.is | 17.05.13 | 16:50Kaupir af Byggingarfélagi eldri borgara
Meira
bb.is | 17.05.13 | 14:48Ríkið tekur fjármuni frá sjávarbyggðunum
Meira
bb.is | 17.05.13 | 13:02Gjaldtaka styður uppbyggingu og öryggi
Meira
bb.is | 17.05.13 | 10:55Styttist í komu fyrstu skipanna
Meira