bb.is | 28.05.2008 | 13:33Grjóthrunsmenn taka lagið á Óshlíð
Fyrrum bæjarstjóri Bolungarvíkur Grímur Atlason og þúsundþjala-læknirinn Lýður Árnason munu taka lagið fyrir vegfarendur á Óshlíð kl. 16 í dag. Er það gert í tilefni af útgáfu fyrstu hljómsveitar kappanna, Grjóthruns í Hólshreppi, en hún kemur út á föstudag. Heppnir bílstjórar sem eiga leið um Óshlíð fá glænýja plötu að gjöf. Platan er gefin út í samstarfi við útgáfu- og dreifingarfyrirtækið Kimi records. Bæjarstjórnarmaðurinn úr Vogunum Jón Elíasson slær gígjuna og Húsvíkingurinn Haraldur Ringsted sem slær bumbur.„Hér er að finna kröftugt kassagítarrokk með alvöru ádeilutextum á íslenskt samfélag. Landsbyggðarhnefanum er dúndrað í borðið og málefni líðandi stundar krufin og mulin niður í öreindir; kvótakerfið, fólksflutningar, auðsöfnun og framtíðarhorfurnar“, segir í tilkynningu. „Þessi fyrsta plata sameinar vestfirska og norðlenska krafta og hér er um að ræða landsbyggðarpródjekt par excellance, fárbautastein sem leggur línurnar fyrir sjálfstæðisbaráttu vestfirskra um ókomna framtíð.“ Platan er fáanleg á www.kimirecords.net.
thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.