| Fyrri mynd | Næsta mynd |
bb.is | 13.02.2008 | 16:37Dómsmálaráðherra á Ísafirði
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, kom í heimsókn til Ísafjarðar í morgun. Ráðherrann hefur í dag fundað með sýslumanni og bæjarstjórn. Björn byrjaði heimsóknina á því að fara í menningarhúsin þrjú á Ísafirði, Edinborg, tónlistaskólann og Safnahúsið en hann er þeim ekki ókunnugur því þegar hann var menntamálaráðherra undirritaði hann samkomulag um menningarhúsin þrjú. Í hádeginu boðuðu sjálfstæðismenn til fundar með Birni en eftir hádegi tóku við alvarlegri mál. Eftir fund með sýslumanni fundaði hann með bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar um ýmis mál er snerta hans ráðuneyti. Meðal atriða sem voru á dagskrá fundarins voru tillaga Vestfjarðanefndar um miðstöð skýrslugerða lögreglu á Ísafirði. Þá var rætt um hugmyndir um byggingu björgunarmiðstöðvar á Ísafirði. Samkvæmt þeim yrði um að ræða samstarf slökkviliðs, björgunarsveita, almannavarna og hugsanleg fleiri aðila.Áætlanir um að Ísafjörður verði þjónustumiðstöð fyrir A-Grænland voru rædd sem og hugmyndir um olíuhreinsistöð en því tengjast öryggismál í siglingum og viðbúnaður sem þyrfti að vera til staðar. Einnig var rætt um staðsetningu björgunarþyrlu og mál tengd Landhelgisgæslunni sem bæjarstjórn hefur sent dómsmálaráðherra erindi um.
smari@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.